22.11.1933
Efri deild: 16. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 473 í B-deild Alþingistíðinda. (701)
20. mál, síldarbræðsluverksmiðja á Norðurlandi
Björn Kristjánsson:
Ég fellst á það, að nauðsynlegt sé fyrir síldarútveginn, að nýrri verksmiðju sé bætt við á Norðurlandi. Það kemur oft fyrir, að síldveiðiskipin verða að bíða dögum saman eftir afgreiðslu, og jafnvel þurft að kasta aflanum í sjóinn, þar eð síldin hefir verið orðin ónýt, þegar að þeim kom. — Enda mun enginn ágreiningur hafa orðið um þetta atriði í hv. Nd. En í þeirri hv. d. komu fram ýmsar uppástungur um það, hvar fyrirhugaða verksmiðju ætti að reisa. Ég vildi taka það fram nú þegar við 1. umr., að sá staður, sem ég tel sjálfsagðastan fyrir verksmiðjuna, var ekki nefndur í hv. Nd., — en það er Raufarhöfn. Þó þykist ég sjá, að hv. þm. hafi haft Raufarhöfn í huga, þar sem till. var breytt þannig, að það svæði, sem tiltekið var, nái frá Hornbjargi austur til Langaness. Meiningin með því að láta svæðið ná svona langt austur getur varla verið önnur en sú, að Raufarhöfn komi til álita, þegar verksmiðjunni er valinn staður. Ég skal taka það fram, að á Raufarhöfn er ágæt höfn, líklega ein bezta höfn á landinu, þegar inn er komið. En bæði höfnin sjálf og innsiglingin er of grunn til þess að mjög stór skip komist þar inn. Þó er dýpið nóg fyrir öll síldveiðiskip, t. d. munu allir togararnir geta notað höfnina. Ég skal ennfremur geta þess, að fiskitökuskipið „Ulv“, sem fórst á Húnaflóa fyrir nokkrum árum, var þá á leið vestur með landi, og kom í þeirri ferð á Raufarhöfn. Þetta skip var um 2000 smálestir að stærð, og sýnir þetta dæmi, að höfnin er ekki mjög grunn. — Ég heyrði ekki umr. í hv. Nd. um þetta mál, en þó mun hafa verið minnzt á það, að gera þyrfti stórkostleg hafnarmannvirki á sumum þeim stöðum, sem stungið var upp á fyrir verksmiðjuna. Því tel ég það ekki óviðeigandi að nefna stað, sem nú þegar hefir ágæta höfn, sem aðeins þarf að moka upp úr til þess að hún verði með beztu höfnum landsins. Þessi umrædda höfn líkist mest litlu stöðuvatni, innsiglingin er þröng, og veit til suðurs, svo að hafsjóar ná sér ekki inn á höfnina. — Mönnum kynni að detta í hug, að þessi staður væri óheppilegur vegna síldargangnanna. En svo er ekki. Það er oft svo, einkum síðari hluta síldveiðitímans, að síldin liggur öll austur með landinu. Stundum, þegar alveg er síldarlaust fyrir vestan, er allt morandi af síld á Þistilfirði og við Sléttuna. Þannig var það síðastl. sumar. Síldin hvarf þá snögglega fyrir vestan, en þá var nóg síld á Þistilfirði. En þar vantaði tunnur og salt, og verksmiðjan á Raufarhöfn hafði svo mikið af óunninni síld, að hún gat við engu tekið. — Ég vil benda á það, að það getur haft mikla þýðingu fyrir síldveiðaflotann að dreifa síldarverksmiðjunum nokkuð, svo að veiðiskipin þurfi ekki að sigla langt til þess að losna við afla sinn. — Eitt er það enn, sem mér finnst mæla sterklega með Raufarhöfn, og það er, að þar hefir síldarbræðsluverksmiðja verið starfandi um nokkur ár, og gæti vel komið til mála, að ríkið keypti hana. Mér er kunnugt um það, að þessa verksmiðju má fá fyrir lítið verð. Einmitt í dag fékk ég bréf frá eiganda verksmiðjunnar, þar sem hann er að leita upplýsinga um það, hvort ekki gæti komið til mála, að ríkið keypti verksmiðjuna. Ef ríkið keypti þessa verksmiðju og starfrækti hana, mundi ég geta sætt mig við þá úrlausn og ekki taka þátt í þeirri samkeppni, sem virðist hafa átt sér stað milli hv. þm. í Nd. um þessa fyrirhuguðu nýju verksmiðju. Mun ég síðar bera fram brtt. þess efnis, að ríkisstj. sé heimilað að kaupa verksmiðju á Raufarhöfn. Ég býst við því, að það þyrfti að gera á henni ýmsar umbætur. Það hefir ríkt svo mikil óvissa um þennan atvinnurekstur, að eigandinn hefir ekki viljað leggja í hann mikið fé. En þrátt fyrir það, að gera þyrfti ýmsar umbætur á verksmiðjunni, þá er ég sannfærður um, að verð hennar, ásamt kostnaði af umbótunum, yrði aldrei líkt því eins mikið og kostnaður við að reisa nýja verksmiðju álíka stóra. Annars get ég sagt það, eins og þörfin er mikil fyrir síldveiðaflotann að losna við veiði sína í verksmiðju, þá virðist mér það ekki að bera í bakkafullan lækinn, þó að hvorttveggja verði gert, að byggja nýja verksmiðju, sem sennilega yrði á Siglufirði, Eyjafirði eða við Húnaflóa, eða einhversstaðar á þessu tilteknu svæði, og líka að kaupa verksmiðjuna á Raufarhöfn. Það er hin mesta þörf fyrir síldarbræðslustöð á þessum stað, ekki aðeins fyrir síldveiðaflotann, heldur einnig fyrir þá, sem þarna búa og hafa flutzt þangað í þeirri von, að þeir fengju atvinnu við síldarbræðsluverksmiðjuna þar. Það má heita, að lífsskilyrði þeirra, sem búa á þessum stað, séu dauðadæmd, ef þessi verksmiðja, sem nú er rekin þar, verður lögð niður, sem nú lítur út fyrir, vegna þess að hún er bundin við að kaupa hráefni að miklu leyti af íslenzkum skipum.
Fari svo, að hún verði lögð niður, er ekkert við að vera á þessum stað og ekki líkindi til annars en að staðurinn leggist í eyði, því sá litli bátaútvegur, sem þar er, er að miklu leyti háður því, að síldarbræðsluverksmiðja sé rekin þar. Honum er nauðsynlegt að fá beitu frá þeim skipum, sem koma með síld í verksmiðjuna.
Ég hefi ekki meira að segja um þetta að sinni, en vildi láta þetta koma fram nú við 1. umr. málsins hér, svo að sjútvn. geti líka haft þennan stað í huga, ef hún tekur þá ákvörðun að benda á vissa staði sem heppilega fyrir þessa nýju verksmiðju.