22.11.1933
Efri deild: 16. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 480 í B-deild Alþingistíðinda. (705)
20. mál, síldarbræðsluverksmiðja á Norðurlandi
Björn Kristjánsson:
Ég vil aðeins gera örstutta aths. Mér skildist á hv. 3. landsk., að honum þætt undarlegt, að nokkrar umr. skuli vera um þetta mál hér í d. Hann þarf ekki að undra sig á því, þó að eitthvað sé um þetta mál talað hér eins og í Nd., og ekki heldur á því, að ég skyldi nefna Raufarhöfn í sambandi við þetta mál. Honum er það kunnugt, að ég hafði ekki tækifæri til þess að koma því fram í Nd., sem ég vildi um þetta segja.
Ég vildi ekki láta þessar umr. fara svo fram, að ekki yrði bent á þennan stað, sem ég tel hafa ákaflega mikil skilyrði til, að þar geti blómgazt verksmiðja. Með þessu er ég þó ekki að halda því fram, að ekki geti fleiri staðir komið til greina, t. d. við Húnaflóa.
Ég tel sjálfsagt, að stj. láti rannsaka, hvar verksmiðjan eigi að standa, og taki sérstaklega tillit til þess, hvar hún komi að sem mestum notum fyrir landsmenn alla. Ég hefi ekki verið að halda því fram, að Raufarhöfn sé alveg sjálfsagður staður fyrir hana, en ég álít, að hún komi fullkomlega til greina.
Út af því, sem hv. 2. landsk. sagði, að þegar verið væri að ræða um einhverja sérstaka staði í þessu sambandi, þá væri líka verið að ætlast til, að gerð væru stórkostleg hafnarmannvirki, þá vil ég segja það, að um slíkt er ekki að ræða á þeim stað, sem ég tilnefndi. Það er álit kunnugra manna, að sú höfn sé einhver albezta höfn landsins. Þó að eitthvað þyrfti að dýpka hana, þá myndi það aldrei kosta mjög mikið. — Ég sé svo ekki ástæðu til að tala meira um þetta að sinni.