04.12.1933
Efri deild: 25. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 490 í B-deild Alþingistíðinda. (715)

20. mál, síldarbræðsluverksmiðja á Norðurlandi

Björn Kristjánsson:

Mér þykir fyrir því, að sjútvn. skuli ekki hafa séð sér fært að mæla með þessari brtt. minni. Hv. frsm. gat þess, að á Sólbakka hefði verksmiðjan starfað undanfarin ár og svo mundi enn verða, þó ríkið keypti hana ekki. Þetta getur verið rétt, en það sannar ekkert, að svo muni verða á Raufarhöfn. Ég hefi einmitt mikla ástæðu til að ætla, að verksmiðjan þar muni ekki verða rekin framvegis. Mér er að vísu ókunnugt um útkomu rekstrarins á síðasta sumri; ég get ímyndað mér, að hann hafi borið sig. En ég þykist hafa gilda ástæðu til að ætla, að verksmiðjan verði ekki rekin framvegis, hvað sem líður útkomunni í sumar, og dreg ég það af bréfi framkvæmdarstjóra eiganda verksmiðjunnar, þar sem hann segist ekki geta hugsað sér að halda áfram rekstrinum, vegna þess hve aðstaðan sé óviss.

Ég lít svo á, að miklu réttara sé að samþ. heimild fyrir ríkisstj. til þess að kaupa þessa verksmiðju á Sólbakka og að meiri ástæða sé til að heimila stj. að kaupa þessa verksmiðju heldur en að leggja fé í verksmiðjur, sem ekki er búið að reisa.

Hæstv. dómsmrh. sagði, að það væri sannarlega nóg að byggja eina verksmiðju á ári. Ég get skilið þetta, þegar talað er út frá fjárhagslegu sjónarmiði. Ég veit, að ríkissjóður hefir í mörg horn að líta og að erfitt er að fá tekjur og útgjöld til þess að standast á.

Hinsvegar hefir það verið tekið fram bæði af mér og öðrum, að þar sem svo mikið er í húfi fyrir fjölda fólks, að hægt sé að halda við og auka þennan atvinnuveg, þá megi ekki líta allt of einhliða á þetta.

Auk þess vil ég benda á það, að þessi till. mín er aðeins heimild, sem stj. getur látið vera að nota, ef ekki eru ástæður fyrir hendi. Þetta er ekki skipun, heldur heimild.

Að því er Raufarhafnarverksmiðju snertir og kaupverðið á henni, þá get ég ekki gefið glöggar upplýsingar um það. En ég býst við, að hægt sé að fá hana með góðu verði og borgunarskilmálum.

Það er rétt, sem hæstv. ráðh. sagði, að ef ætti að reka verksmiðjuna í framtíðinni, yrði að gera ýmsar umbætur á henni. En ég skil varla, að til þess þyrfti 60 þús. kr. Það þarf að byggja „tank“ fyrir lýsi, og er áætlað, að hann muni kosta 25 þús. kr. Svo býst ég við, að það þyrfti að lagfæra ýmislegt fleira, en ég geri ekki ráð fyrir, að það verði svo dýrt.

Hv. 6. landsk. sagði, að órannsökuð væri innsiglingin á Raufarhöfn. Það er ekki rétt. Fyrir nokkrum árum lét vitamálastj. mæla upp höfnina, og það mun hægt að fá upplýsingar um það. Hitt er líka kunnugt, að síldveiðiskip og togarar sigla viðstöðulaust út og inn höfnina. Og ég tók það fram við fyrstu umr., að gufuskipið „Ulv“ kæmi við á Raufarhöfn á sinni síðustu ferð, og ég man ekki betur en að það hafi verið 2 þús. tonna skip. Og á hverju ári nú undanfarið hafa komið til verksmiðjunnar 600—700 tonna skip, sem hafa siglt út og inn höfnina. Þetta sýnir, að höfnin er ekki sérstaklega athugaverð að þessu leyti.

Ég vil því endurtaka þá ósk mína, að hv. dm. geti séð sér fært að samþ. þessa till., því ég er nokkurn veginn sannfærður um, að undir því er það komið, hvort þarna verður rekin verksmiðja framvegis eða ekki.