04.12.1933
Efri deild: 25. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 503 í B-deild Alþingistíðinda. (725)

20. mál, síldarbræðsluverksmiðja á Norðurlandi

Björn Kristjánsson:

Hæstv. dómsmrh. sagði, að till. mín væri ekki fram komin vegna þess, að tryggja þyrfti það, að rekstur verksmiðjunnar á Raufarhöfn héldi áfram. Hún væri eingöngu til að fá þetta samþ. Þetta er alls ekki rétt, og sönnun fyrir þeirri staðhæfingu er sú, að á þinginu 1932 flutti ég samskonar till. En þá féllst ég á að láta hana sofna, vegna þess að áður en hún náði fullnaðarafgreiðslu úr þinginu frétti ég það, að verksmiðjan yrði starfrækt næsta sumar. Hið eina, sem fyrir mér vakir með brtt., er að tryggja það, að verksmiðjan verði rekin. Sjái eigandinn sér fært að reka hana áfram, þá óska ég þess, að stj. veiti henni sem mestar ívilnanir að hægt er. Meðan allt er í óvissu um aðstöðuna hverfur hvötin til umbóta. Þess vegna þarf að tryggja verksmiðjuna sem bezt, að svo miklu leyti sem hægt er. Hv. frsm. talaði um, að ekki væri heppilegt að hafa allar verksmiðjurnar undir einum og sama hatti. Ég fyrir mitt leyti er alls ekkert að óska þess, heldur þess eins, að einhver haldi áfram starfrækslu þeirrar verksmiðju, sem hér um ræðir.