08.12.1933
Sameinað þing: 12. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 559 í B-deild Alþingistíðinda. (74)

Afgreiðsla þingmála

Tryggvi Þórhallsson:

Þar sem fram hafa komið svo margar ásökunarraddir á hæstv. forseta, kann ég ekki við að láta ekki koma fram eina rödd til mótmæla, því að ég lít svo á, að hæstv. forseti hafi í öllu farið eftir þingsköpum og sé ekki vítaverður í þessum efnum.