16.11.1933
Neðri deild: 11. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 513 í B-deild Alþingistíðinda. (776)

28. mál, innflutningur á sauðfé til sláturfjárbóta

Halldór Stefánsson:

Það mun vera rétt, sem hv. frsm. sagði, að ákvæði, sem sett voru í 1. frá 8. sept. 1931 um innflutning sauðfjár, munu hafa verið miðuð við holdakyn eingöngu. Það hefir þá ekki verið mönnum ljóst, hverskonar not það voru, sem hafa mætti af innflutningi karakúlafjárins. Það er því augljóst, að breyta verður þessum 1. og veita heimild til að ala upp blendinga af karakúlafénu, því annars hefði innflutningur þess verið tilgangslaus.

Eftir því sem ég skil 1. gr. frv., þykir mér ákvæði þess um heimildina til uppeldis karakúlafjárins nokkuð þröng. Vil ég því beina þeirri fyrirspurn til hv. frsm., hvort með orðalagi 1. gr. sé átt við það, að almenn heimild sé gefin eftir till. og með ráði Búnaðarfél. Ísl., eða hvort aðeins sé meint að veita leyfin einstaklega einum og einum eiganda hrútanna, sem þegar hafa verið fluttir inn. Ef hið síðara er meining frv., álít ég, að stofnað yrði til mikillar og alóþarfrar skriffinnsku. Það myndi verða erfitt með nokkurri sanngirni að neita sumum fjáreigendum um heimild þessa, ef öðrum væri hún veitt, enda sé ég enga ástæðu til slíks, því að eigendurnir munu vera félög bænda, sem vel er trúandi til að hlíta þeim settu reglum og veita uppeldi fjárins fulla athygli.