16.11.1933
Neðri deild: 11. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 513 í B-deild Alþingistíðinda. (777)
28. mál, innflutningur á sauðfé til sláturfjárbóta
Frsm. (Bjarni Ásgeirsson):
Það hefir ekki verið rætt um það, a. m. k. ekki í Búnaðarfél. Ísl., sem ég geri ráð fyrir, að aðallega ræði þessar reglur og ráði þeim, þegar þær verða settar, hverjum reglum verður sérstaklega slegið föstum, hvort gefin verður út almenn heimild handa öllum fjáreigendum um að veita þeim með ákveðnum skilyrðum þetta leyfi, eða að hver einstaklingur, sem vill fá leyfið, verði að sækja sérstaklega um það til stj. Búnaðarfél. Ísl. En ég held, að í framkvæmdinni verði það haft þannig, að hver einstakur maður, sem vill nota einblendinga til framtímgunar, verði að sækja sérstaklega um leyfi til þess til Búnaðarfélagsstjórnarinnar, til þess að sauðfjárræktarráðunauturinn geti fylgzt vel með þessum málum. Ég býst við, að það muni þykja nauðsynlegt til tryggingar því, að hægt sé að fylgjast með um það, hvernig þessar tilraunir gefast. Ég álít það ekki svo útlátamikið fyrir menn að skrifa bréf til að sækja um þetta.
Ég hefi ekki vald til að svara þessu endanlega nú, en mér þykir sennilegast og heppilegast, að þessi leið verði farin.