18.11.1933
Neðri deild: 13. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 514 í B-deild Alþingistíðinda. (780)

28. mál, innflutningur á sauðfé til sláturfjárbóta

Halldór Stefánsson:

Ég er fús á að verða við þeim tilmælum hv. frsm. n., að geyma þessar till. til 3. umr., með þeirri hugsun, að n. ætli að athuga þær nánar. En svo framarlega sem ekki koma frá n. eða mér neinar tilkynningar til hæstv. forseta um, að till. eigi að koma fyrir við 3. umr., þá óska ég, að þær verði þá teknar með á dagskrá án þess að ég þurfi að bera þær fram á ný.