23.11.1933
Neðri deild: 17. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 515 í B-deild Alþingistíðinda. (785)

28. mál, innflutningur á sauðfé til sláturfjárbóta

Halldór Stefánsson:

Eins og menn heyrðu, leggur hv. landbn. á móti brtt. mínum á þskj. 61. Mér skildist á orðum hv. þm., að hann teldi, að í frv. sé sama meining eins og í brtt. mínum. Brtt. séu því óþarfar. Með skírskotun til þessa álits frsm. er tilgangi mínum með brtt. í raun og veru náð og eftir þessi ummæli frsm. n. eru þær ekki orðnar eins nauðsynlegar. En samþykkt þeirra hefði þó enn betur tekið af allan vafa um þetta atriði. Annars er orðun frv. þannig, að hún bendir frekar til þess, að þessa heimild eigi að gefa hverjum einstökum fjáreiganda út af fyrir sig. Það gæti varla komið til mála að baga undanþáguleyfunum þannig. Það væri óþörf fyrirhöfn. Orðalag frv. bendir helzt til þess, að hafðir séu sérstaklega í huga þeir einir, sem þegar hafa fengið sér þetta karakúlafé, og leyfin ætti að veita aðeins hverjum einum fyrir sig, en ekki almennt Slík framkvæmd hlyti að tefja fyrir útbreiðslu fjárins, og væri það illa farið, ef um gagnsemi til muna væri að ræða af þessari fjárrækt.

Við 2. brtt. eða vatill., sem ég hefi gert við frv., hefir hv. frsm. það að athuga, að hann álítur, að hún muni ekki koma rétt inn í l. eftir tölusetningu á greinum í till. Þetta mun vera rétt athugað hjá n. En ef n. hefði fallizt á till., þá hefði það ekki átt að gera svo mikið til í sjálfu sér, því að hægðarleikur hefði verið að leiðrétta það. Ég hefi ekki fyrir mér l. um þetta frá 1931, því miður. En þær reglur og viðurlög, sem í þeim l. eru sett, verða beint hláleg, ef undanþágan er veitt aðeins eins og frá því er gengið í frv. Þar er m. a. svo ákveðið, að allir blendingar, sem ekki eru vanaðir, séu réttdræpir hvar sem þeir finnast. Og ég man eftir því, að fleiri ákvæði en þetta samræmast illa frv. óbreyttu. Ég held helzt, að hv. n. hafi fundizt þessi fugl sinn — frv. — svo fagur, að hann gæti ekki fegri verið. Það er sjálfsagt ekki nema eðlileg ást á eigin fóstri. Ég geri heldur ekki ráð fyrir, að það tjái að reisa rönd við svo fjölmennri og mikils metinni n. sem landbn.

Tel ég, að ég hafi gert mína skyldu í þessu máli, að benda á það, sem betur mætti fara í orðalagi frv. Og ég hefi í raun og veru náð einnig tilgangi mínum með brtt. með því að fá fram viðurkenningu frsm. á því, að með frv. sé meint að gefa ríkisstj. almenna heimild til að veita undanþágu frá ákvæðum laganna.