07.12.1933
Efri deild: 28. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 517 í B-deild Alþingistíðinda. (793)
28. mál, innflutningur á sauðfé til sláturfjárbóta
Frsm. (Páll Hermannsson):
Ég held, að það hefði verið réttara að ganga til atkv. um þetta frv. umr.laust, því að það mun vera svo, að allir hv. dm. gangi út frá því sama. En úr því að ég á að hafa framsögu f. h. n., þá ætla ég að geta þess, að þegar l. um innflutning erlends sauðfjár voru sett hér 1931, þá var þar haft í huga brezka holdaféð og ætlazt til, að höfð yrði einblöndun og einblendingum fargað, svo að vissa væri fyrir, að þeir blönduðust ekki saman við íslenzka féð. En í meðferð málsins á síðasta þingi bættist karakúlaféð við. Það fjárkyn var fyrst og fremst miðað við lambskinnin, sem eru mjög verðmæt. Það er vitað, að blendingsgimbrar, þegar þær eru orðnar ær, eru líklegar til að gefa betri skinn með hreinræktuðum hrút en óblandaðar íslenzkar ær. Er því nauðsyn á heimild til að ala þær upp. Í grg. er líka minnzt á uppeldi hrúta, og held ég, að ekki sakaði, þó að það væri leyft, þó að það hafi minni þýðingu.
Landbn. fellst á, að þetta frv. um breyt. á l. nr. 27 8. sept. 1931 verði samþ. Það gerir mönnum kleift að fá leyfi til að láta blendingslömb lifa. Í frv. er nokkru nákvæmar sagt, hvernig þetta geti orðið. Held ég, að þær reglur mættu vera nokkru rýmri, þó að rétt sé vitanlega að fara varlega í fyrstu. Ég legg til f. h. n., að frv. verði samþ. óbreytt, til þess að koma í veg fyrir, að það dagi uppi.