08.12.1933
Efri deild: 29. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 518 í B-deild Alþingistíðinda. (796)
28. mál, innflutningur á sauðfé til sláturfjárbóta
0796Eiríkur Einarsson:
Ég hafði ætlað mér að vekja máls á einu atriði við einhverja umr. þessa máls hér í Ed., og þar sem þetta er 3. umr., þá eru það síðustu forvöð.
Þar sem hér er um að ræða innflutning á sauðfé til sláturfjárbóta, þá vildi ég nota tækifærið til þess að vekja athygli á því, og þá sérstaklega í sambandi við þær tilraunir, sem hafa verið gerðar með innflutning á karakúlafé, að ég hefi orðið þess var, að þeim, sem ráðizt hafa í að kaupa þetta fé, hefir reynzt ókleift að fá það vátryggt. Það gefur að skilja, að þar sem þetta fé var keypt dýru verði og það voru víðast fáeinir fátækir bændur eða sveitarfélög, sem það gerðu, að það er allt of mikil áhætta fyrir þá að vera bægt frá tryggingu á því fé.
Mönnum er sjálfsagt í fersku minni, hvernig fór um sauðnautin, sem flutt voru hingað til landsins fyrir nokkrum árum. Þau drápust í höndum þeirra manna, sem álitnir voru að hafa bezta þekkingu á allri meðferð þeirra dýra. Mér finnst því óforsvaranlegt að stofna til innflutnings á svo dýrum skepnum, sem hér um ræðir, og dreifa þeim út á meðal fátækra manna, sem litla þekkingu hafa á meðferð þeirra, sem eðlilegt er, en samt vilja vita, hvernig þær gefast hér á landi, án þess að gefa þeim mönnum kost á að vátryggja þær, svo þeir verði fyrir sem minnstum skaða, ef út af ber. — Þetta vil ég taka fram sem almenna aths., er um innfluttan búpening er að ræða, að gefnu tilefni, og vona ég, að úr verði bætt, og er það ríkisstjórnar og Búnaðarfél. Íslands að sjá svo um, að trygging fáist.