28.11.1933
Neðri deild: 21. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 524 í B-deild Alþingistíðinda. (811)
70. mál, dráttarbraut í Reykjavík
Héðinn Valdimarsson:
Ég hefi borið fram brtt. á þskj. 184, þess efnis, að öllum iðnaðarmönnum sé heimill aðgangur til aðgerða á skipum á lóðum dráttarbrautarinnar. Til þess er fyllsta ástæða, því að þótt járnsmiðum sé þetta leyfilegt, þá gildir eins og sakir standa ekki hið sama um trésmiði. Það eru margar stofnanir, sem eiga skipti við dráttarbrautina, t. d. landssmiðjan og höfnin, og þær vilja láta þá sitja fyrir um vinnu, sem hjá þeim eru; og engin ástæða er til þess, að gert sé upp á milli þessara iðngreina, svo að ég flyt brtt. í þeirri von, að þessu ástandi verði lokið.