30.11.1933
Neðri deild: 23. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 526 í B-deild Alþingistíðinda. (817)
70. mál, dráttarbraut í Reykjavík
0817Eysteinn Jónsson:
Ég vildi segja hér örfá orð út af þeim upplýsingum, sem hv. þm. G.-K. hafði fram að flytja. Ég vil benda hv. þm. á, að hér er ekki aðeins um trésmiðavinnu að ræða, heldur einnig botnhreinsun skipanna og málning, eins og raunar kom fram í öðru sambandi í ræðu hv. þm. G.-K., svo að þetta einkaleyfi yrði nokkuð víðtækt. Ef félagið á að fá þennan einkarétt, þá verð ég á móti því, að ríkisábyrgðin verði heimiluð. Þetta er ekkert annað en einokun einkafyrirtækis, og ég er á móti því, að ríkið stuðli að slíku. Hv. þingmaður vildi gera lítið úr því, að erfitt væri fyrir skipaeigendur að komast undan þessu ákvæði, en ég hygg, að það sé erfiðara en hann vill vera láta. Það getur verið mikið tjón að því að láta ekki tré- og járnsmíðaviðgerðir fara fram í einu. Það getur verið óhentugt að þurfa að sigla skipunum eitthvað annað til þess að fá trésmíðaviðgerðir, málningu og botnhreinsun. Auk þess má vel vera, að skipið hafi mönnum á að skipa, sem hægt væri að láta starfa að þessu, skipinu að kostnaðarlausu. Mér finnst heldur engin ástæða til að fara að gefa þetta einkaleyfi, því að Slippurinn hefir jafnan rétt og aðrir, og meira að segja betri aðstöðu, til þess að keppa um viðgerðirnar en önnur trésmíðafyrirtæki hér í bænum. Ég get ekki séð annað en að Slippurinn geti verið fullkomlega samkeppnisfær á þessu sviði, svo framarlega sem verðinu verður hagað eftir almennri venju.
Hv. þm. sagði, að skipin stæðu venjulega uppi 1–2 sólarhringa til viðgerða. Nákvæmlega er vitanlega ekki hægt að segja um þetta, en ef á að fara að láta vinna hvort í sínu lagi járn- og timburviðgerðir, þá verður töfin meiri, og er það því bagalegra, sem skipið tefst lengur frá fiskveiðum.
Ég held, að það séu ekki svo margir menn, sem vinna að staðaldri í Slippnum, að það ætti ekki að vera hægur vandi að útvega þeim einhverja hlaupavinnu á milli þess sem þeir starfa að uppsátri, svo óþarft er að bera því fyrir, þegar rætt er um einokun þessa fyrirtækis.
Að endingu lýsi ég því aftur yfir, að ég mun greiða atkv. á móti ábyrgðarheimildinni, ef brtt. verður felld.