30.11.1933
Neðri deild: 23. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 530 í B-deild Alþingistíðinda. (821)

70. mál, dráttarbraut í Reykjavík

Dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):

Ég fæ ekki séð, að hér geti orðið um einokun að ræða. — Hæstv. forsrh. las hér einmitt upp gr. úr samningi þeim, sem bæjarstj. og Slippfélagið hafa gert með sér, þar sem eigendum skipanna er áskilinn réttur til að ráða mestu um það, hvernig viðgerðunum er hagað. Ég get því ómögulega séð að hér geti orðið um einokun að ræða. Hinsvegar mundi brtt., sem hv. 1. þm. S.-M. flytur, ekki hafa annað í för með sér en að skipaeigendur yrðu að borga meira fyrir að nota Slippinn, með því að till. áskilur það, að Slippfélagið megi ekki hafa menn í fastri vinnu, svo að afleiðingin af að samþ. till. yrði sú, að það væri aðeins gert dýrara að nota Slippinn en ella myndi verða.