30.11.1933
Neðri deild: 23. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 531 í B-deild Alþingistíðinda. (822)
70. mál, dráttarbraut í Reykjavík
Frsm. (Ólafur Thors):
Mér er óskiljanlegt allt þetta tal um einokun, sem hér hefir orðið, og sérstaklega er mér óskiljanlegur sá viðbjóður, sem þeir hæstv. forsrh. og hv. 1. þm. S.-M. virðast nú hafa fengið á allri einokun. Það er eins og hér sé um einhvern draug að ræða, sem þeir sjái nú í fyrsta skipti, og sé svo ægilegur, að þeir sjái sig knúða til að standa upp og vitna. Maður hefði sannarlega búizt við öðrum tilfinningum af hálfu þessara hv. þm. gagnvart því fyrirbrigði, sem einokun er. Auk þess er það og hin mesta fjarstæða, að hér sé um nokkra einokun að ræða. Hér er aðeins um innlent fyrirtæki að ræða, sem á í samkeppni við samskonar erlend fyrirtæki, og ef það selur vinnu sína of dýru verði, verður niðurstaðan aðeins sú, að hér rísa upp önnur fyrirtæki því til höfuðs á þessu sviði.
Ég get annars ekki stillt mig um að gera smáútúrdúr vegna hv. 1. þm. S.-M. Það er hálfhjákátlegt, hvernig þessi hv. þm. hegðar sér hér í d. Hann finnur sig knúðan til að tala 3—4 sinnum í hverju máli, eins og við þingbræður hans höfum enga möguleika til að átta okkur á málunum fyrr en þessi Benjamín d. hefir leitt okkur í allan sannleika. Ég þykist nú raunar vita, að þetta stafi af því, að hv. þm. er ungur og nýkominn á þing, og vil ég því sem eldri þingbróðir hans benda honum á, að það eru a. m. k. öll líkindi til þess, að við hinir eldri getum fremur kennt hv. þm. en hann okkur, og geri ég þetta í þeirri von, að hv. þm. taki þetta til athugunar framvegis. — Hv. 1. þm. S.-M. er að fræða okkur um það, að dráttarbrautin sé nauðsynleg, en að Slippurinn megi bara ómögulega annast trésmiðavinnuna. En ég vil benda þessum hv. þm. á það, að það er ekki nóg að hafa dráttarbraut, fyrirtækið verður líka að bera sig, ef það á að koma að gagni. Þessi hv. þm., sem veit allt milli himins og jarðar, og að vísu er búinn að segja okkur mikið af því, sem hann veit, ætti líka að segja okkur af einhverju slippfélagi einhversstaðar um heim, sem ekki annast sjálft þær aðgerðir, sem fram fara hjá því. Ég hygg nú, að það sé algengast, að slipparnir vinni sjálfir allt, sem að þessum aðgerðum lýtur. Hæstv. forsrh. og hv. 1. þm. S.-M. hafa báðir haft mörg orð um það, að þetta félag hefði notið opinberrar aðstoðar, en ég skal upplýsa það, að ég ætla, að það séu margir aðrir slippar víðsvegar um heim, sem hafa notið slíkrar aðstoðar. Allar hugleiðingar hv. þm. um þetta eru harla hjákátlegar, eins og allt einokunarskraf þeirra, og ber vitni þeirrar andúðar, sem jafnan blæs frá þessum hv. þm. gegn öllum þeim fyrirtækjum, sem einstaklingurinn ræðst í, hversu holl sem þau eru þjóðfélaginu.
Hv. 1. þm. S.-M. þóttist bera alveg dæmalausa umhyggju fyrir skipaeigendum, og sérstaklega fyrir togaraeigendunum, sem hér koma einkum til með að eiga hlut að máli. Ég get sagt það, að ég á ekkert í þessu fyrirtæki, og býst heldur ekki við að eignast neitt í því, en ég hefi verið viðriðinn nokkuð togaraútgerð og ber hagsmuni hennar allmjög fyrir brjósti, og ég skal lýsa því yfir, að ég ber ekki kvíðboga fyrir því, að þetta fyrirtæki okri á okkur togaraeigendum. Og mér finnst það blátt áfram hlægilegt, þegar hv. 1. þm. S.-M. þykist bera meiri umhyggju fyrir hagsmunum mínum og stéttarbræðra minna en við sjálfir gerum. Ef athugað er eðli málsins og rétt rök, sér líka hver maður, að það er ástæðulaust að óttast, að Slippurinn okri á okkur viðskiptavinum sínum, þótt hann fengi þessi fríðindi að því er snertir trésmíðavinnuna. Slippurinn er ekki síður háður okkur en við honum, og ef hann ætlar að fara að okra á okkur og sjúga úr okkur blóðið að þessu leyti, þá hættum við bara að skipta við hann. Við höfum því í fullu tré við þetta fyrirtæki. Hinsvegar þarf Slippurinn á þessum fríðindum að halda, svo að hann geti fengið sæmilegan grundvöll fyrir fjárhagsafkomu sinni og þurfi einmitt ekki að taka meira en nauðsynlegt er af okkur skipaeigendum, en því verður ekki við komið, ef þessi einkaréttur er af honum tekinn.
Hæstv. forsrh. talaði um að leggja ákveðinn skilning í brtt., á þann veg, að Slippurinn fengi að nota sína föstu menn, sem hann þyrfti nauðsynlega að hafa vegna uppsáturs skipanna, jafnframt við trésmíðavinnu, málningu o. fl., sem gera þarf að skipunum, en skipaeigendur réðu menn til þessarar vinnu að öðru leyti. Ég hygg nú, að það sé einmitt þetta, sem Slippfélagið æskir eftir, en það verður hinsvegar erfitt að koma því við í framkvæmdinni, ef það þá yfirleitt er hægt.
Þá vitnaði hæstv. forsrh. í samning, sem bæjarstj. hér og hafnarstj. hefir gert við Slippfélagið, en í 8. gr. þessara samninga er eigendum skipa, sem tekin verða upp á dráttarbrautunum, heimilað að ráða því, hver framkvæmi viðgerðirnar. Út af þessu vil ég beina því til hæstv. forsrh., hvort honum sé ekki kunnugt, að deilt hefir verið um þetta. Ef hann veit meira, er það ólíkt honum að leyna þeirri vitneskju. Þetta hefir og ekki verið tíðkað frá því Slippurinn tók til starfa, enda hefi ég í höndum yfirlýsingu frá borgarstjóranum í Rvík — (Forsrh.: Hvaða borgarstjóra?). Þeim borgarstjóra, sem undirskrifaði samninginn. — um það, að þennan skilning beri ekki að leggja í ákvæði þessarar gr. Yfirlýsing hans er á þessa leið:
„Að gefnu tilefni lýsi ég því yfir, að með ákvæðum 8. gr. í samningnum milli bæjarstj. og hafnarnefndar Reykjavíkur og h/f Slippfélagsins um dráttarbrautir, að því, er snertir aðgerðarvinnu í Slippnum, var ætlazt til, að eigendum skipa skyldi frjálst að ráðstafa járnviðgerðum eins og þeir vilja, en að Slippfélaginu væri heimilt að framkvæma sjálft allt trésmíði við skipin og hreinsun við málningu þeirra, svo sem felst í því, að félaginu er heimilað að starfrækja trésmíðastofu, og svo sem verið hefir frá upphafi, er Slippfélagið tók til starfa.
Umræddur samningur var samþ. á fundi bæjarstj. 3. des. 1931 og síðan undirritaður af mér sem borgarstjóra fyrir hönd bæjarstj. og hafnarn., og er samningurinn var undirritaður, var það beint tekið fram, að skilja bæri 8. gr. hans eins og hér að ofan segir.
Reykjavík, 29. nóv. 1933.
K. Zimsen.“
Þá vil ég ennfremur skýra frá því, að Slippfélagið hefir látið prenta samningsform, sem eigendur þeirra skipa, sem tekin eru upp, undirskrifa. Þetta samningsform hefir legið hjá hafnarn. til samþykktar, en í því er tekið fram, að félagið áskilji sér rétt til að framkvæma hreinsun, málun og trévinnu, sem framkvæmd er á skipi á dráttarbrautinni, en hinsvegar er eiganda skipsins frjálst að ráðstafa járnaðgerð skipsins eftir geðþótta.
Það, sem liggur fyrir í þessu máli, er það, að Slippfélagið hefir átt þennan rétt og hagnýtt sér hann frá því það tók til starfa. Hlutaðeigandi hafnar- og bæjarvöld hafa ætlazt til, að Slippurinn hefði þennan rétt, enda er fyrirtækinu það nauðsynlegt, til þess að það geti starfað á tryggum og eðlilegum fjárhagsgrundvelli. Þykist ég mega vænta þess, að þingið taki tillit til þessara staðreynda, ekki sízt þar sem viðskiptamönnum Slippsins stendur enginn voði af þessum fríðindum, sem Slippnum þannig hafa verið gefin.