30.11.1933
Neðri deild: 23. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 536 í B-deild Alþingistíðinda. (824)
70. mál, dráttarbraut í Reykjavík
Eysteinn Jónsson:
Ég skal ekki misnota það leyfi, sem hæstv. forseti gefur mér til þess að gera stutta aths. út af ræðu hv. þm. G.-K. — Þessi hv. þm. eyddi miklu máli í það að amast við því, að ég talaði mikið hér á Alþingi. Mun ég nú að vísu ekki sækja leyfi til þessa hv. þm. um það, hvort ég tala mikið eða lítið, eða eiga málfrelsi mitt undir honum, en ég verð þó að láta í ljós gleði mína yfir því, að þessi hv. þm. skuli sjá ástæðu til að amast við ræðum mínum, því að það gefur mér ástæðu til að halda, að sumt af því, sem ég segi, a. m. k., sé ekki unnið fyrir gýg.
Hv. þm. G.-K. spurði mig að því, hvort það væri nokkursstaðar bannað, að Slippfélögin hefðu trésmiðavinnuna með höndum, og verð ég að segja það, að þetta er út í bláinn mælt hjá hv. þm. G.-K. Ég hefi aldrei talað um að banna neitt, en aðeins lagt áherzlu á það, að trésmíðadeild Slippsins hefði engin forréttindi um þessa vinnu, heldur hefði hún aðeins sömu aðstöðu og aðrir bæjarbúar að þessu leyti.
Hæstv. forsrh. hefir svarað helztu efnisatriðunum í ræðu hv. þm. G.-K., og get ég vísað til þess. Einu vildi ég þó skjóta til hv. þm. G.-K. áður en ég sezt niður, og það er það, að það eru fleiri en hann, sem hafa hagsmuna að gæta í þessu sambandi, og þótt Kveldúlfur sé sterkur og þurfi ekki að verða háður Slippnum að þessu leyti, eru hér til önnur fyrirtæki jafnframt Kveldúlfi, sem ekki eru nógu sterk, ef Slippfélaginu tekst að skapa sér þessa einokunaraðstöðu, og það eru þessir aðilar, sem ég hafði fyrst og fremst í huga með brtt. minni.