30.11.1933
Neðri deild: 23. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 543 í B-deild Alþingistíðinda. (846)

67. mál, Samvinnufélag sjómanna á Stokkseyri

Frsm. (Eysteinn Jónsson):

N. er sammála um að leggja til, að þessi heimild verði veitt og málið verði afgr. með breyt. á þskj. 206. Þó hefir einn nm. skrifað undir nál. með fyrirvara, sem mér er ekki kunnugt um, hver er, en hann mun að sjálfsögðu gera grein fyrir sinni afstöðu.

N. lítur svo á, að hér standi svipað á um þessa ábyrgðarheimild eins og um aðrar þær heimildir, sem samþ. hafa verið. Stokkseyrarhreppur er mjög illa stæður og hefir sótt um til atvmrn., að það léti rannsaka fjárhag hreppsins og möguleikana á því að efla þar atvinnulíf á einn eða annan hátt.

Þetta er gamalt sjópláss, svo að hér stendur nokkuð öðruvísi á en um Borgarnes, og hefir þó verið tekið vel í að veita Borgnesingum samskonar ábyrgð. Ríkið hefir að undanförnu lagt fram fé til hafnar- og lendingarbóta á Stokkseyri. Vænti ég nú, að hv. d. fallist á að hlaupa undir bagga með þeim mönnum, sem hér eiga hlut að máli, svo að þeir verði færir um að hjálpa sér sjálfir.