05.12.1933
Efri deild: 26. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 544 í B-deild Alþingistíðinda. (853)
67. mál, Samvinnufélag sjómanna á Stokkseyri
Eiríkur Einarsson:
Þetta frv. hefir gengið í gegnum Nd., og vænti ég því þess, að það fái öruggan framgang hér í deildinni. Þó að mikið af ábyrgðarbeiðnum til Alþingis sé nú á ferðinni, verður að fara eftir því, hvar nauðsynin er mest, og hér er um svo þýðingarmikið mál að ræða, að óhjákvæmilegt er að gefa því fullan gaum og unna því framgangs.
Fyrir nokkrum árum gengu 16—17 bátar frá Stokkseyri, en síðustu vertíð ekki nema 6, eða rúmur þriðjungur. Fólksfjöldi kauptúnsins hefir staðið í stað, en afkomumöguleikar hafa vitanlega stórum versnað, svo að fólk hefir orðið að leita í aðrar áttir eftir atvinnu, af því að bjargræði var ekki heima fyrir.
Sumum kann að vísu að þykja óálitlegt að stofna til nýrrar útgerðar á Stokkseyri, eftir það, sem á undan er gengið. En þess er að gæta, að undanfarið hefir verið varið fé til að bæta smábátaleiðina þar í veiðistöðinni með góðum árangri, og fiskimiðin er ekki að yggja, ef á sjó gefur. Þótt útgerðin hafi minnkað um skeið, vegna erfiðleika og óhappa, þá horfir þar nú allt betur við með lendingarbótunum, þótt þær þurfi enn aukningar, og ekki er að yggja sjódug Stokkseyringa.
Félag það, sem hér um ræðir, er samvinnufélag, þar sem starfsmennirnir sjálfir eru að basla við útgerð sér til lífsbjargar, þar sem þeir eiga heimilisfang, og sú viðleitni á svo mikinn rétt á sér, að ég verð að vænta þess, að Alþingi leggi ekki stein í götu málsins. Vona ég, að það fái að sigla í gegnum hv. d. án þess að verða vísað til n., því að áliðið er þingtíma, en bjargræðisviðleitni sem þessi krefst afgreiðslu, en má ekki daga uppi.