07.12.1933
Sameinað þing: 11. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 561 í B-deild Alþingistíðinda. (87)

Kosningin í Hafnarfirði

Á 11. fundi í Sþ., 7. des., var tekið til meðferðar:

Nefndarálit kjörbréfanefndar um kæru út af kosningunni í Hafnarfirði (A. 309).

Frsm. (Haraldur Guðmundsson): N. hefir kynnt sér skjöl þau, er fylgdu kærunni yfir kosningunni í Hafnarfirði, og er hún öll sammála um það, að á kosningunni utan kjörstaðar hafi orðið misfellur. En um hitt sýndist sitt hverjum, hversu hart bæri að átelja þær misfellur. Hinsvegar var því haldið fram, að á nokkrum öðrum stöðum hefðu einnig orðið mistök á atkvgr. utan kjörstaðar, að á a. m. k. einum stað hefðu ekki verið viðstaddir vitundarvottar og að annarsstaðar hefði verið veitt aðstoð við kosninguna. N. leggur til, að þessar misfellur verði átaldar og gerðar ráðstafanir til þess, að þær komi ekki fyrir oftar. Þarf ég svo víst ekki að rifja upp fleira og læt þetta nægja.