23.11.1933
Neðri deild: 17. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 3 í C-deild Alþingistíðinda. (883)

51. mál, strandferðir

Flm. (Eysteinn Jónsson):

Ástæðan til þess, að ég miða við í frv., að ríkið taki að sér strandferðirnar, er sú fyrst og fremst, að ríkið hefir hingað til annazt þær og enginn aðili annar hefir viljað taka þær að sér svo að nokkru næmi, af því að þær bera sig svo illa. Mér finnst að öllu leyti eðlilegt að halda áfram á þeirri braut, að ríkið sjái um rekstur strandferðanna að sem mestu leyti.

Hinsvegar er gert ráð fyrir því, að framvegis eins og hingað til geti einstök félög eða skip fengið styrk til strandferða. Þannig er það með Eimskipafélagið. Það er gert ráð fyrir, að það haldi áfram eins og verkast vill og síður en svo loku skotið fyrir það í þessu frv. En ég segi fyrir mig, að ég hefi þessa skoðun, að það sé heppilegt, að ríkið haldi áfram á þessari braut eins og hingað til, og hefi miðað frv. við það. Annars vil ég ekki á þessu stigi málsins þrátta um þetta atriði. Ég geri ráð fyrir, að tími vinnist að ræða málið, þegar það kenna frá nefnd.

Viðvíkjandi skattinum, sem gert er ráð fyrir frá heim aðilum, sem ekki fá styrk til að reka strandferðir. Vil ég segja það, að þetta getur komið illa niður í einstökum atriðum. En ég svara því til, að þetta frv. er alger frumsmíð, og getur því þurft að taka til athugunar ýmis atriði þess, sem ég vænti, að n. geri. Mér finnst, að komast mætti framhjá því, sem hv. þm. Borgf. talaði um, með því að láta skip, sem ekki flytja farþega að staðaldri, vera undanþegin skattinum. Aðalatriðið er að finna leið til þess, að innlendu skipin annist þessi störf og bæta aðstöðu þeirra til þess að gera strandferðirnar sem beztar. Og ég veit, að það er almennur skilningur orðinn á því í landinu, hve mikil óhæfa það er, að okkar skip liggi athafnalaus á sama tíma og erlend skip sigla milli stærstu hafnanna með goðum árangri.

Ég geri ráð fyrir, að sumir hv. þm. hugsi sem svo, að menn megi ekki missa af ferðum með útlendum skipum. En sannleikurinn er sá, að skipastóli okkar er mikill, sérstaklega hjá Eimskipafél., og það virðist fyllilega vera hægt að verða við flutningapörfinni með heim skipum einum saman og með þeim landflutningum, sem nú eru orðnir tíðir frá Norðurlandi. En þaðan er aðalfarþegaflutningurinn með útlendu skipunum.