23.11.1933
Neðri deild: 17. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 4 í C-deild Alþingistíðinda. (884)
51. mál, strandferðir
Dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):
Það er auðvitað ekki mikil ástæða til að ræða þetta frv. nú, þar sem hv. flm. lýsti yfir því, að hann ætlaðist ekki til, að það yrði að lögum nú. (EystJ: Ég gerði ekki ráð fyrir því, þó að ég vildi það). Ójá. En ég vildi benda á það, að það mundu koma fram æðisterkar óánægjuraddir úti um landið, ef frv. verður samþ. nú. Ég held, að ýmislegt þurfi að breytast áður en fært er að samþ. lög eins og þessi.
Þar sem hv. aðalflm. sagði, að ríkisstj. ætti að hafa allar strandferðir í sinni hendi, þá skal ég taka fram, að ég hélt, að hann hefði sett þetta ákvæði inn í frv. til þess að komast hjá ákvæðum sambandslaganna um jafnrétti Dana til atvinnu hér á landi. En nú sé ég, að svo er ekki; það er sett til þess að koma fram algerðum ríkisrekstri í þessu. Ég get sagt honum, að ég er sannfærður um það, að ef einungis skip ríkisins ættu að annast þessa flutninga, þá mundi það ekki nægja, nema stórum væri bætt við skipastólinn. (EystJ: Þetta útilokar ekki, að Eimskipafélagið sé styrkt). Nei, það útilokar það ekki; en ef ríkið kaupir skip og fer að annast strandferðirnar af meiri krafti en nú, þá hlýtur að reka að því, að það vill ekki lofa öðrum að hafa sömu ferðir, enda er svo fyrir mælt í frv., að þegar ríkið hefir næg skip, þá megi ekki aðrir flytja farþega með ströndum fram. Þá hlýtur afleiðingin af slíkum ríkisrekstri að verða sú, að Eimskipafél. er útilokað um allar skipaferðir kringum landið, en það yrði til stóraukins kostnaðar fyrir landsmenn, því að þá legðust niður beinir flutningar til smáhafnanna úti um land, og Rvík yrði miðstöð allra vöruflutninga, en flutningsgjöld stórhækkuðu. En þar með er kippt stoðum undan starfsemi Eimskipafél., þeirri, sem nú er svo notasæl landsmönnum, en það eru viðkomurnar á smáhöfnunum. Það, sem því veldur, að ekki er meira tap á þeim en raun er á, eru fargjöldin, sem reytast talsvert til á smáhöfnum.
Annars vil ég leyfa mér að mælast til þess við þá nefnd, sem fær þetta mál til meðferðar, að hún sendi það Eimskipafél. til umsagnar. Því að sjálfsögðu hlýtur það að bera meira skynbragð á þetta mál en hver og einn okkar, sem hér eigum sæti.