02.12.1933
Neðri deild: 24. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 20 í C-deild Alþingistíðinda. (903)
49. mál, áfengt öl til útflutnings
Frsm. meiri hl. (Guðbrandur Ísberg) [óyfirl.]:
Frv. þetta hefir iðnn. haft til athugunar, en ekki getað orðið sammála um afgreiðslu þess. Meiri hl. leggur til, að frv. verði samþ. með nokkrum breyt., sem eru á þskj. 159, og mega breytingarnar skoðast sem umorðun á frv.greinunum, en ekki um efnisbreyt. að ræða. Í þessu frv. ræðir um að skapa möguleika til að skapa nýja framleiðslu á iðnaðarvöru til útflutnings. Verði þetta svo sem gert er ráð fyrir, þá fæst aukin atvinna innanlands, erlendur gjaldeyrir og síðast en ekki sízt aukin fjölbreytni í útflutningsvörum landsananna. Til skamms tíma hefir það verið svo, að hér hefir einungis verið um tvo atvinnuvegi að ræða, landbúnað og sjávarútveg. Nú er þriðji atvinnuvegurinn að skjóta upp höfðinu, þ. e. a. s. iðnaðurinn. Hann er ennþá á bernskuskeiði, en okkar iðnaðarmenn hafa sýnt, að þeir þola allan samanburð hvað dugnað og smekkvísi snertir. Og það svo, að við getum mikils vænzt af þeim í framtíðinni, ef þeir mæta skilningi almennings og löggjafarinnar, sem þeir eiga skilið og er þjóðarnauðsyn að sýna þeim. Atorka og framtak þessara manna hefir beinzt að því að framleiða vörur til notkunar innanlands, og það er eðlilegt, að byrjað sé á því. En það er ekki nóg. Við verðum að gæta þess, að við kaupum mestallt af hráefnum, sem þarf, erlendis frá. Eins má benda á, að ennþá kaupum við megnið af þeim iðnaðarvorum, sem notaðar eru innanlands, frá útlöndum. Því hygg ég ekki úr vegi að athuga möguleikana til þess að flytja út í staðinn eitthvað það, sem vegið gæti upp á móti erlendum vöru- og hráefnakaupum. En þegar um slíka framleiðslu er að ræða, er líka jafnframt rétt að taka tillit til þess, að allir markaðir heimsins eru nú svo að segja fullir af iðnaðarvöru,m, sem leitað er kaupenda að. Það er því ekki sama, að hvaða iðnaði er beinzt í þessu efni. Það getur ekki verið nema einhver vörutegund, sem við höfum sérstaka aðstöðu til að framleiða og möguleika til að fá markað fyrir erlendis. Og hvað ölið snertir, eru sérstakir möguleikar fyrir hendi hér á landi. Sérfræðingar fullyrða, að við stöndum alveg sérstaklega vel að vígi hvað ölframleiðslu snertir, þar sem við höfum betra vatn en nokkursstaðar annarsstaðar er að finna. Þessa aðstöðu eigum við að nota okkur. Og hvað markað snertir má benda á, að ein af stærstu nágrannaþjóðum okkar –– Englendingar –– kaupir mjög mikið af öli til eigin nota. Danir og þjóðverjar flytja inn geysimikið af öli. Ef hægt væri að hefja ölframleiðslu, eru miklar líkur til, að við myndum geta unnið þarna markað svo að fám árum liðnum gæti verið hér um hundr. þús. eða um millj. kr. útflutning að ræða. Þetta atriði er þess vert, að hv. þm. taki það til athugunar. Ég vil svo með tilliti til 1. gr. frv., þar sem farið er fram á 10 ara einkaleyfi til handa Ölgerðinni Agli Skallagrímssyni, benda á, að nú framleiðir þessi ölgerð allt það öl, sem við notum innanlands, svo að hér er um hreina aukningu að ræða. En einkaleyfisbeiðnin stafar af því, að dýrt er að vinna vörum markað erlendis, og það væri mjög óþægilegt og óeðlilegt, að ný ölgerðarhús færu að keppa um þessa framleiðslu nú þegar, þar sem hér er um að ræða firma, sem um langan tíma hefir starfað að þessu. Fyrir fáum árum reis hér upp ölgerðin Þor, en gafst upp eftir lítinn tíma og mun nú vera runnin saman við Egil Skallagrímsson. Þetta tíu ára einkaleyfi er nauðsynleg hlunnindi til þess að gera firmanu mögulegt að beita sér fyrir, að vörurnar vinni markað erlendis.
Hvað 3. gr. snertir, þar sem farið er fram á, að af þessu öli verði ekkert framleiðslugjald greitt, þá eru það líka sjálfsögð hlunnindi, þegar um er að ræða voru til útflutnings á erlendan markað, og hvað ríkið snertir, þá tapar það hér engu í, vegna þess að hér er einungis um aukna sölu að ræða á erlendum markaði.
Sú grein, sem fjallar um nauðsynlegt eftirlit með því, að l. verði ekki brotin, á þann hátt að ölið verði selt hér innanlands, á meðan það er ekki leyft með sérstakri löggjöf, þarf ekki skýringar við. Ég vil svo að lokum leyfa mér að undirstrika það, sem ég sagði í upphafi, að ef þetta frv. verður samþ., þá er hér um að ræða allstóran atvinnumöguleika, aukinn erlendan gjaldeyri og aukna fjölbreytni í útflutningsvörum. Þar sem hér er um að ræða framleiðsluvöru á erlendan markað, þá verður ekki lengur staðið á móti því, að þessi framleiðsla hefjist og því betra, sem hún getur hafizt fyrr. Ég vil því vænta þess, að hv. þm., sem styðja vilja innlendan iðnað, bregði ekki fæti fyrir frv., en lofi því að ganga áfram.