02.12.1933
Neðri deild: 24. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 22 í C-deild Alþingistíðinda. (904)

49. mál, áfengt öl til útflutnings

Frsm. minni hl. (Héðinn Valdimarsson):

Við höfum tveir í n. ekki orðið sammála hinum um þetta mál, heldur lítum svo á, að það eigi ekki á þessu þingi að ganga frá því, heldur bíða átekta og sjá, hvernig áfengislöggjöfin verður afgr. Þá verður væntanlega tekið til athugunar um tilbúning öls eða sterkari drykkja og hvort það sé heppilegt að hafa það her. Það er engin ástæða til að hraða þessu máli svo mjög, að það geti ekki beðið. Minni hlutinn leggur því til, að málinu verði haldið opnu á þann hátt. að því sé aðeins vísað til stj.

Ég vil bæta því við, að ég álít ekki heppilegt að fara að auka framleiðslu áfengra drykkja í landinu, hvort sem það er áfengt öl eða brennivín eða annað slíkt. Það eru margir aðrir framleiðslumöguleikar, sem mundu skapa meiri og heppilegri atvinnu fyrir landsmenn.

Ég tel líka mjög ólíklegt, að það, sem vakir fyrir ölgerðinni, sé það eitt, að stofna til útflutnings öls, því það er enginn viss markaður fyrir slíkt, en með því að hafa tryggt sér framleiðsluleyfi til útflutnings er langt komið inn á þá braut að tryggja ölgerðinni sölu í landinu sjálfu. A. m. k. er erfiðara að neita því þá.

Ég álít því, að þetta gefi tilefni til þess, að málið verði vandlega rannsakað áður en það er afgr. á þingi.