02.12.1933
Neðri deild: 24. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 24 í C-deild Alþingistíðinda. (906)

49. mál, áfengt öl til útflutnings

Frsm. meiri hl. (Guðbrandur Ísberg) [óyfirl.]:

Mér kom það ekki á óvart, þó hreyft yrði andmælum gegn þessu frv. Hv. 2. þm. Reykv. byggir andmæli sín gegn frv. á því, að engin ástæða sé til þess að skapa atvinnu innanlands með ölframleiðslu; það sé hægt á einhvern annan hátt. Það má vel vera, t. d. með hví að kaupa togara. En það hafa heyrzt raddir um, að svo geti farið, að sala á okkar fiski stöðvaðist, og eins landbúnaðarafurðum. Þess vegna er það almennt viðurkennt, að lífsnauðsyn sé fyrir okkur að auka fjölbreytni í framleiðslunni. Þessu vænti ég, að hv. 2. þm. Reykv. treysti sér ekki til að mótmæla. hér er um eina slíka leið að ræða, og ég vil skora á hv. þm. (HV) að benda á einhverja aðra leið, sem hann telur færa á næstunni. Hér eru möguleikar fyrir hendi til þess að skapa mjög góða vöru, sem líkur eru til að geti rutt sér til rúms á erlendum markaði. Þetta vil ég leyfa mér að benda hv. þm. á.

Hvað því viðkemur, sem hv. þm. Borgf. hélt fram, þá hirði ég ekki um að svara honum.

Það er kunnugt, að menn geta drukkið frá sér vit, en það er líka kunnugt um marga templara, og þar á meðal hv. þm. Borgf., að hann getur komizt í það ástand, að hann stingur skynseminni í vasann og talar af tómu óviti bara ef hann heyrir talað um áfengi.