02.12.1933
Neðri deild: 24. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 25 í C-deild Alþingistíðinda. (908)

49. mál, áfengt öl til útflutnings

Frsm. minni hl. (Héðinn Valdimarsson):

Ég þarf mjög litlu að svara hv. frsm. meiri hl. Hann talar um það, að markaður gæti brugðizt fyrir fisk og kjöt. En þó er gamall markaður fyrir, þar sem bæði íslenzkt kjöt hefir selzt um langan aldur og fiskur, og enn hefir það ekki farið svo, að við höfum framleitt meiri fisk heldur en selzt hefir. En aftur á móti er hvað ölið snertir, sem hér er um að ræða, enginn markaður til; hann er eftir að vinna, og allar þær glæsivonir, sem hv. frsm. er að gera sér, eru hreinar skýjaborgir.

Hv. 1. þm. Reykv. kvaðst vera með þessu vegna þess, að hann vildi með bindindisstarfsemi sinni ekki ná út fyrir landhelgina. En ég lít svo á, að ef ölgerðinni yrði leyft að flytja út áfengt öl, þá myndi fljótlega fengið leyfi til þess að selja það innanlands. Ég ímynda mér, að því mundu fylgja nokkuð sterk rök, þegar þar að kæmi, og þætti hart, að innlent framleiðslufyrirtæki fengi ekki að selja framleiðslu sína í landinu, en mætti selja hana út úr landinu. Annars er það dálítið einkennilegt um þessa 2 ræðumenn, hvað þeir virðast vera fíknir í að gefa einstökum fyrirtækjum einkaleyfi, eins og þeir eru þó fjandsamlegir því, að þjóðin sjálf hafi einkaréttindi á slíku.