02.12.1933
Neðri deild: 24. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 27 í C-deild Alþingistíðinda. (910)
49. mál, áfengt öl til útflutnings
Jakob Möller:
Einhver sú einkennilegasta grautargerð, sem ég hefi komizt í kynni við, er ræða hv. þm. Vestm., því hann blandar saman hinum óskyldustu hlutum. Ég sé ekki, að þetta frv. hér komi nokkuð hinni nýafstöðnu atkvgr. við. Það er engin afstaða látin í ljós með þeirri atkvgr. gagnvart því, hvort eigi að leyfa framleiðslu á sterku öll til sölu í landinu. Hitt vitum við, að alstaðar meðal menningarþjóða, eins og hv. þm. komst að orði, stefnir að því að framleiða veikara og veikara öl. Hv. þingmaður talar um, að það eigi að leyfa að brugga veikt öl, en hann meinar sterkt öl, sterkara en það, sem nú er bruggað í landinu. Þess vegna segi ég það, að þetta er einkennileg grautargerð. Yfirleitt skil ég ekki, hvað hv. þm. meinar með því að blanda þessum óskyldu málum saman. Það kemur vitanlega til kasta þingsins á sínum tíma að ákveða, hvort eigi að leyfa bruggun á sterkara öli til sölu innanlands. Ef hv. þm. hefði komið með brtt. við frv. um að leyfa bruggun á sterkara öli til sölu innanlands, hefði verið öðru máli að gegna. En hann er svo fanatískur í þessu máli, að fyrst hann getur ekki sjálfur fengið að kaupa sterkara öl en nú er hér leyft, þá vill hann ekki heldur láta útlenda menn eiga kost á því. Þetta finnst mér frekar bera vott um fanatisma og ofstæki hjá honum um en það, sem hann brigzlar bæði mér og öðrum hv. þm. um. Að lokum get ég sagt, að mér liggur í nokkuð léttu rúmi, hvað af þessu frv. verður. Ég veit ekki, hvort það er svo mikið þjóðnytjamál sem gumað hefir verið af; og ég efast um, að það sé hér um verulegt ágóðafyrirtæki að ræða. En ef svo skyldi vera, þá sé ég ekkert því til fyrirstöðu, að það verði rekið af einstökum mönnum, ekki sízt þegar athugað er, að í ríkissjóð eiga að renna 25% af ágóðanum. Um það get ég ekki verið sammála hv. 2. þm. Reykv., þegar hann má ekki heyra slíkt nefnt.