02.12.1933
Neðri deild: 24. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 29 í C-deild Alþingistíðinda. (912)
49. mál, áfengt öl til útflutnings
Frsm. meiri hl. (Guðbrandur Ísberg) [óyfirl.]:
Eins og menn geta greinilega séð, ef þeir lesa frv., þá er í því aðeins farið fram á heimild til þess að framleiða áfengt öl til útflutnings. Hitt, hvort leyfa skuli síðar sölu þess innanlands, liggur alls ekki fyrir, og þess vænti ég, að hv. þm. beini ekki málinu inn á þá braut. Ákvörðun um það verður engin tekin fyrr en áfengislögin verða samin á ný. Hv. 2. þm. Reykv. bar ráð fram, að enginn markaður væri til fyrir þessa vöru erlendis. Það er að nokkru leyti, en það eru möguleikar til þess að vinna þennan markað. Ég hefi þegar bent á, að við höfum skilyrði til þess að framleiða betra öl en völ er á erlendis, og á því höfum við byggt að miklu leyti möguleikana fyrir þessum nýja markaði. Raunar finnst mér það undrun sæta, að nokkur þm. skuli leyfa sér að bera annað eins og þetta fram fyrir d., að benda á það, að markaður sé ekki fyrir vöru, sem aldrei hefir verið til, þegar farið er fram á að veita heimild til að framleiða vöruna í fyrsta skipti. En viðvíkjandi tilraunum til útflutnings vil ég benda á, að ofurlítið hefir þegar verið flutt út til reynslu af léttu öli og hefir gefizt vel, en nógu góður árangur hefir ekki náðst vegna þess, að ekki er gott að geyma þetta veika öl; til þess útheimtist töluvert meira alkoholinnihald en nú er leyft, því að alkoholið er nauðsynlegt til þess að varðveita ölið frá skemmdum. Það er ekki farið fram á meira alkoholinnihald vegna áfengisins sjálfs, heldur af því, að það er nauðsyn fyrir útflutningshæfileika ölsins. Létta ölið eins og það er nú er ekki hæft til útflutnings. — Dagskrá hv. þm. Borgf. tel ég hreinustu firru og geri mitt til þess að kveða hana niður.