02.12.1933
Neðri deild: 24. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 33 í C-deild Alþingistíðinda. (915)
49. mál, áfengt öl til útflutnings
Frsm. meiri hl. (Guðbrandur Ísberg) [óyfirl.]:
Mér finnst einkennilegt þetta tal hv. þm. um sölu öls innanlands. Hv. þm. Vestm. rís hér upp og lýsir því yfir, að hann fari fram á, að leyfð verði sala innanlands á öli. Hann hefir engar till. borið fram um þetta; hann gerir ekki annað með ræðuhöldum sínum en að flækja málið og þvæla fyrir því. Hann styður meira að segja rökstudda dagskrá, sem fer fram á, að málinu sé vísað til stj. Hv. þm. S.-Þ. var á sömu villigötum, en fór þó lengra. Hann lýsti yfir því, að tilgangurinn með þessu frv. hefði aldrei verið að bæta hag þjóðarinnar, og að við flm. tryðum ekki á það, og okkur hefði aldrei dottið það í hug. Hvernig stendur á því, að hann leyfir sér að bera slíkar staðhæfingar fram á Alþingi, og hvar eru rök fyrir þessu? Hann slær því fram, að sér þætti gaman að sjá þessi 25% í framkvæmdinni og að nokkuð lítið muni úr þeim verða. Það er að óverðskulduðu, sem hann ber þetta á hlutaðeigendur og hæstv. stj., sem á að hafa eftirlit með þessu og sjá um, að því sé framfylgt. Hitt er annað mál og ég get gjarnan viðurkennt það, að fyrst um sinn munu litlar eða engar nettótekjur vera af fyrirtæki þessu, vegna þess hve miklum kostnaði þessar framkvæmdir eru bundnar, og þess vegna finnst mér og öðrum, að sanngirni mæli með því, að einkaleyfið standi í 10 ár, svo að hægt verði að ná þessum kostnaði. Þetta er mín afstaða til málsins eins og það liggur fyrir, en ekki með tilliti til innanlandssölunnar; og ég hefi ákveðna trú á, að þetta fyrirtæki verði til mikilla hagsbóta fyrir ríki og þjóð.