08.12.1933
Efri deild: 29. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 36 í C-deild Alþingistíðinda. (926)
49. mál, áfengt öl til útflutnings
Frsm. minni hl. (Guðrún Lárusdóttir):
Grundvallarskoðun mín er sú, að áfengi sé skaðlegt, og get ég því ekki léð atkv. mitt til þess að auka á framleiðslu þess, hvort heldur sem er fyrir innlendan eða útlendan markað. Ég lít svo á, að ef ekki er hægt að mæla með vörunni við nokkurn, þá eigi heldur ekki að greiða fyrir tilbúningi hennar.
Sumir álíta, að öl sé óskaðlegur drykkur, en ölið hefir þó kennt mörgum manninum að drekka sterkari drykki, ölkrúsin hefir mörgum manninum vísað leiðina inn að öltúrum Bakkusar.
Ég hefi nýlega lesið það einhversstaðar í ensku tímariti, að konur nokkrar, sem stofnað hafa hæli fyrir ofdrykkjukonur í Lundúnum, þeim til bjargar og viðreisnar, hafi kynnt sér það, hvað það var fyrst og fremst, sem leiddi konur þessar til ofdrykkju og út í allt það volæði, sem af henni hlýzt. Hælið gat hýst 200 konur í einu. Við rannsóknina kom það í ljós, að af þessum 200 konum höfðu 175 byrjað á að drekka öl, og við neyzlu þess fengið tilhneigingu til að drekka sterkara vín, unz tilhneigingin varð að óviðráðanlegri ílöngun, sem leiddi af sér allskonar eymd og lesti.
Með þetta og ótal fleira af sama tægi augum hlýt ég að leggjast á móti frv., sem hér liggur fyrir.