15.11.1933
Neðri deild: 10. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 66 í C-deild Alþingistíðinda. (938)
17. mál, framfærslulög
Flm. (Halldór Stefánsson):
Við höfum þrír þm. borið fram frv. þetta á þskj. 22. Þarf ekki langan formála fyrir því, með því að það er hv. þm. þegar nokkuð kunnugt orðið. Frv. er nær samhljóða frv., sem við nokkrir þm. bárum fram á þinginu 1932, en þá náði ekki afgreiðslu. Auk þess fylgir frv. allýtarleg grg.
Þótt frv. sé fullkominn texti á framfærslulögunum, er ekki svo að skilja, að hér sé um alveg gagngerðar breyt. að ræða, heldur hefir svo verið gert vegna orðabreyt. á ýmsum hugtökum, svo sem framfærslulög fyrir fátækralög, framfærslustyrkur fyrir fátækrastyrkur o. s. frv., orða, sem oft koma fyrir. Annars vil ég geta þess, að orðalag frv. er að miklu leyti sniðið eftir orðalagi frv. þess um sama efni, sem Alþýðufl.menn hafa borið fram hér á þingi.
Það eru einkum tvö atriði, sem frv. breytir. Fyrri breyt. er sú, að heimilið raði um rétt og skyldu til framfærslu í stað fæðingarhrepps eða tiltekinnar dvalar. Hitt atriðið er að jafna framfærslukostnaðinn milli hinna einstöku héraða meir en nú er gert.
Fátækraframfærslan er almenn skylda, sem ákveðin er í stjskr., og á því að réttu lagi að falla á landsmenn á sama hátt og önnur almenn opinber útgjöld. Það hefir þótt hagnýtt fyrirkomulagsatriði að skipta landinu í mörg og smá framfærsluhéruð, með þeirri hugsun, að með því móti yrði framfærslubyrðin minni í heild. Hefir því fæðing í hreppnum eða ákveðin dvöl verið gerð að skilyrði fyrir framfærslurétti allt til þessa tíma. Þetta fyrirkomulag er vitanlega einnig að nokkru leyti leifar af þeirri gömlu stefnu, sem einu sinni var ríkjandi, að fjötra menn við atthagana; ætti það eitt út af fyrir sig að vera næg ástæða til að nema úr lögum þessar leifar átthagafjötranna. Afleiðing skipulagsins um þetta atriði hefir svo orðið fátækraflutningarnir, sem með réttu eru illa þokkaðir um allt land.
Annar agnúinn á þessu fyrirkomulagi er sá, hve álögurnar hafa fallið misjafnt á hin einstöku framfærsluhéruð, jafnvel svo, að einstöku framfærsluhéruð hafa orðið ósjálfbjarga fjárhagslega af þessum ástæðum. Menn munu minnast þess, að á síðasta þingi þurfti að setja lög til að rétta við og styðja einstök sveitarfélög, sem komin voru í fjárþrot, fyrst og fremst og aðallega af þessum sökum.
Áhrif þessarar breyt., að lögheimilið eitt ráði framfærslurétti, yrðu fyrst og fremst þau, að fátækraflutningarnir hyrfu alveg úr sögunni. Önnur afleiðing yrði sú, að framfærslubyrðin felli af sjálfu sér jafnar á framfærsluhéruðin. Fólksflutningarnir um landið liggja þannig, að fólkið flytur þangað, sem atvinnuskilyrði eru betri eða bezt, þaðan sem þau eru rýr eða rýrari. Það er líklegt, ef sveitfestisákvæði frv. yrði að lögum, að fátækraframfærið yrði aldrei yfir meðallag þar, sem fólkið streymir að vegna þess, að atvinnuskilyrðin eru þar betri en annarsstaðar. Hitt er öfugt við alla sanngirni og hróplegt ranglæti, að þegar fólk hefir flutzt til staða, þar sem atvinnuskilyrði eru betri, frá öðrum stöðum, þar sem þau eru lakari, þá sé það flutt aftur sem fátækrastyrkþurfar á hina lakari staði, ef það ber upp á sker í atvinnunni fyrr eða síðar af einhverjum ástæðum.
Á Alþingi 1932 var samþ. breyt. við fátækralögin til að gera nokkurn jöfnuð milli einstakra framfærsluhéraða með ríkissjóðsframlagi. Þessi breyt. nær þó allt of skammt og við viljum gera þennan jöfnuð meiri með frv. okkar. Ég hygg, að sá jöfnuður náist án þess að auka framlag ríkissjóðs, ef frv. okkar verður að lögum. Höfum við tekið jöfnunarákvæði laganna frá 1932 upp í þetta frv. nær óbreytt.
Ég vænti þess, að málinu verði að lokinni umr. vísað til 2. umr. og allshn.