15.11.1933
Neðri deild: 10. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 69 í C-deild Alþingistíðinda. (944)

23. mál, bæjarútgerð Reykjavíkur

Flm. (Héðinn Valdimarsson):

Mál þetta lá fyrir síðasta þingi en fekk þá ekki afgreiðslu. Eins og kunnugt er, er Rvíkurbær í hættu staddur vegna þess, að togaraflotinn fer minnkandi frekar en hann aukist, eins og þó þyrfti að vera til að halda til jafns við vöxt bæjarins. Eina leiðin út úr þessum vandræðum er bæjarútgerð. Það mál stendur nú yfir í bæjarstjórn, og hefir verið skipuð n., sem fjallar um það, en álit frá henni er enn ókomið. En til þess að tefja ekki framgang málsins um of, þá er nauðsynlegt, að heimild sé fyrir hendi handa ríkisstj. til þess að ábyrgjast lán fyrir bæinn, ef til kemur. Þess vegna er þetta frv. flutt hér, því að annars yrði líklega að fresta aðgerðum í þessu efni þangað til í okt. næsta ár. Ég vil svo leggja til, að frv. verði vísað til 2. umr. og til sjútvn., að þessari umr. lokinni.