15.11.1933
Neðri deild: 10. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 70 í C-deild Alþingistíðinda. (946)

23. mál, bæjarútgerð Reykjavíkur

Flm. (Héðinn Valdimarsson):

Ég geri ekki ráð fyrir því, að flokkarnir hér í þingi verði sammála um þetta frv. Sjálfstfl. mun leggjast á móti þessu, eins og hann hefir lagzt á móti samvinnufélögum sjómanna um útgerð. Nú eiga bæjarstjórnarkosningar að fara fram í vetur í Rvík, og getur þá svo farið, og er líklegt, að hún verði öðruvísi skipuð en sú, sem nú fer með völdin. Þá gæti svo farið, að beiðni kæmi frá henni um þessa ábyrgð, og þá væri of seint að taka hana til greina þar sem þá verður búið að slíta þinginu. Hinsvegar, ef sá meiri hl., sem nú er í bæjarstjórn, stendur eftir kosningarnar, þá skaðar ekki þessi ábyrgðarheimild, því að þá þyrfti bæjarstj. ekki að neyta hennar fremur en henni sýndist, og ég efast ekki um, að slíkur meiri hluti mundi forðast þessi bjargráð. Annars er mér spurn út af ummælum hv. 1. þm. Reykv. um togaraútgerðina: á hverju lifir Rvík, úr því togaraútgerðin ber sig ekki? Er það ekki einmitt hún, sem hefir borið Rvík uppi alla tíð, sem aðrar atvinnugreinir allar hvíla á, undirstaða Rvíkur? Hvað verður um Reykjavík þegar útgerðin er þaðan farin?