17.11.1933
Neðri deild: 12. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 80 í C-deild Alþingistíðinda. (979)
29. mál, verslunarskudir og vaxtataka af verslunarskuldum
Flm. (Gísli Sveinsson):
Herra forseti! Ég býst við, að flestir, ef ekki allir, séu nú orðnir sammála um það, að verzlunarskuldir almennings á landi hér séu ekki einungis orðnar óhæfilega miklar, heldur líka séu þær í hæsta máta geigvænlegar. Ef menn ættu að hugsa sér það, að áfram héldi á þeirri braut, sem nú um allmörg ár hefir verið farin — viljandi eða óviljandi — í þessu efni, þá er ekki annað fyrirsjáanlegt en að hrun komi ofan á hrun, og það með tiltölulega stuttu millibili, hjá þeim, sem verzla og hafa viðskipti við þær aðalviðskiptastofnanir, sem nú eru úti um héruð landsins.
Það má ýmislegt segja um það, að óhjákvæmilegt hafi verið að verzla á þennan veg. Það má segja, að ekki hafi verið hægt að ráða bót á fyrirkomulaginu — þótt ekki sé tekið með, að það virðist vera stefna ýmissa verzlana og jafnvel heils félagsskapar að verzla ekki skuldlaust, — ekki kleift að hugsa til þess, af þeirri ástæðu, að landsfólkið, með þeim möguleikum, sem það hafði um sölu afurða, hafi ekki verið til þess bært að inna af höndum sínar greiðslur eins og vera bar.
En nú er svo komið, eins og hv. þm. og öðrum er kunnugt, að nú er stofnað til sérstakra aðgerða, í þeirri von og sem tilraun til að létta af ákveðinni stétt hinum þyngstu skuldabyrðum. Það er enn óráðið, að hve miklu leyti þetta geti orðið. En fullvíst er, að Kreppulánasjóður hefir í fyrsta lagi það verkefni, að lána almenningi, bændum, til þess að lina á slíkum skuldum. Það er sem sé víst, að langmestur hluti af skuldum almennings úti um sveitir er einmitt verzlunarskuldir, og eigi niðurfærsla skulda að verða að marki hjá þessu fólki, koma fyrst og fremst verzlunarskuldir til greina.
Spurningin er þá sú, hvort þm. séu ekki sammála um að reyna að sporna við því, að þetta fari aftur í sama horfið, sem það illu heilli hefir verið í. Menn munu yfirleitt sammála um það, að það eru ekki heilbrigð viðskipti, að verzlunarskuldum sé safnað að nokkrum mun. Það eru ekki heilbrigð viðskipti fyrir viðskiptastofnanirnar, sem verða að þola þetta, og því síður heilbrigt fyrir viðskiptamenn og almenning allan, sem við þær verzlar.
Þetta kemur mönnum vel saman um, en það getur verið, að menn greini á um það, hvernig hægt er að sporna við því, að þetta haldi áfram. Menn hafa ekki séð nein ráð ennþá, nema þá helzt, að löggjöfin setji einhverjar hömlur. Ýmsir kaupmenn og kaupfélagsstjórar mundu verða allir af vilja gerðir til þess að lagfæra verzlunarástandið, ef þeir hefðu nokkra stoð af hálfu löggjafarvaldsins til þess. Það gefur að skilja, að ein og ein verzlun stendur mjög illa að vígi að taka fyrir að hætta að lána, þegar aðrar verzlanir og viðskipti í kring ganga þannig fyrir sig, að ekkert heldur aftur af í því efni. Ég býst við, að verzlanir verði fegnar því, ef fundin yrðu einhver ráð trygg í löggjöfinni, sem þær gætu notað til leiðbeiningar á þeim ófarnaði, sem svo lengi hefir við gengizt. Hér á þingi hafa að vísu tvisvar verið borin fram frv. um fyrningu verzlunarskulda í fyrra skiptið 1928 og í seinna skiptið 1932. Hv. meðflm. minn að þessu frv., hv. 2. þm. N.-M. (HStef ), bar þau bæði fram. Hann taldi — og sjálfsagt margir með honum — rétt að fara inn á þessa braut, eingöngu vegna verzlunarskuldanna. Frv. var að vísu í því formi þá, að breyta fyrningarl. frá 1905 grein fyrir grein, en tilætlunin var sú sama. 1928 fór þetta mál í nefnd. N. skilaði áliti og var því greinilega öll meðmælt, að þetta næði fram að ganga, en taldi þann hanka á, að ekki er enn búið að sjá fyrir, að almenningur ætti aðgang að neinni rekstrarlánastofnun til þess að geta greitt úr viðskiptum sínum í tæka tíð. Þau frv. sem voru borin fram áður, voru því á sömu braut og þetta frv. Þau ákvörðuðu fyrningarfrest skulda eitt ár. En eins og kunnugt er, er fyrningarfrestur ósamningsbundinna skulda nú að lögum 4 ár. Þetta frv. gerir nú ráð fyrir því, að þær skuldir, sem almennt eru kallaðar verzlunarskuldir, fyrnist á einu ári, og það eins þótt þær séu viðurkenndar og gerður samningur um þær, og einnig þótt viðskiptin haldi áfram milli kaupanda og seljanda. Er rétta í samræmi við aðurnefnd frumvörp. Það kemur ekki að neinu haldi að hafa fyrningartímann stuttan, ef ekki er tekið fyrir það, að hægt sé að komast undan lögunum með einfaldri samningsgerð. Eins er hitt, að ef framhald viðskiptanna rýfur fyrninguna, þá hangir allt í sama horfinu. Fyrir þetta hvorttveggja verður að taka.
Þessi ákvæði eiga við allar slíkar skuldir, öll viðskipti, sem gerast eftir að l. eru komin í gildi. En svo eru í 3. gr. ákvæði um skuldir, sem þegar eru gerðar, að þær falli undir þessi ákvæði, nema seljandi og kaupandi geri upp viðskipti sin eða semji um þau. Nú má gera ráð fyrir, að mikið af þessum skuldum verði gert upp hvort sem er hjá öllum búandlýð landsins, einmitt með kreppulánunum. Margir bændur geta þar með e. t. v. komizt á hreinan grundvöll eða hreinni en áður, og byrjað nýtt líf. Hinsvegar er víst, að mikið getur skort á, að allir verði þess um komnir að standa í skilum, nema með aðstoð, og fer það nokkuð eftir árferði í viðskiptum. Þess er þó að gæta, að allir hafa ársfrest til þess að leiðrétta sín viðskipti frá fyrra ári. Og hefir það að vísu verið kölluð smuga fyrir þá, sem vildu fara í kringum lögin, að þeir gætu á næsta ári eftir að skuld safnaðist látið sín innlegg eftir samkomulagi við verzlunina koma upp í hina gömlu skuld, en gætu skuldað aftur í næstu árslok vegna sinnar úttektar, og þannig koll af kolli. Þetta er satt. En aðrir hafa talið þetta laust við ákvæðin, því að þá yrðu þau ekki eins ströng í framkvæmdinni. En hinsvegar má líta svo á, að allir, sem verzla, hafi hagsmuna að gæta — og það ríkra hagsmuna, eftir því sem tímar líða — að koma viðskiptunum á réttan kjöl, en láta menn ekki skulda mjög mikið, þótt eitthvað yrði fyrst um sinn. Einnig er það líklegt, að þetta reki á eftir því, að eitthvað verði gert til þess að útvega bændum aðgang að rekstrarlánastofnunum, til þess að geta staðizt sín viðskipti frá ári til árs. Þykir mér líklegt, að hv. þm., sem áður hafa fjallað um þau mál, mundu fúsir til að gera eitthvað í því efni að gefnu tilefni.
Annað höfuðákvæði frv. er um vextina, og er þar algerlega bannað að reikna vexti af verzlunarskuldum, og eins þótt samið sé um þær. Það er alkunnugt um þessa verzlunarvexti, að þeir hafa reynzt örðugir og óþolandi í viðskiptum almennings. það er kunnugt, að ýmsar verzlanir hafa fyrir löngu tekið upp á því, aðrar fyrir tiltölulega skömmu (að því er ætla má af því, að þær hafi talið sig neyddar til), að reikna vexti, og það háa vexti, af öllum viðskiptum. Þessir vextir hafa orðið svo þungbærir, að ekki er viðlit, að menn geti risið undir þeim. Hinir skuldugu menn geta ekki minnkað skuldirnar og sama sem ekkert greitt í veæti, en þeir eru orðnir mjög háir og skipta fljótt hundruðum, ef um þúsunda skuld er að ræða. Mikill hluti bænda hefir átt að greiða vexti og vaxtavexti til jafnaðar mörg hundruð króna hin seinustu ár, en þetta hafa ekki verið tiltök, því að aðeins fáir hafa getað greitt nauðsynlega úttekt sína og ekki meira. þessi vaxtataka hefir orðið óvinsæl hér á landi, og ég geri ráð fyrir, að almenningur úti um land, og þá eins fulltrúar almennings hér í þingsalnum, viti það, að ekki er til neins að haga viðskiptunum á þennan hátt. Það er ekki til neins fyrir verzlanirnar að ætla sér að reka sin viðskipti með miklum skuldum og þungum sköttum. Skuldabyrðin verður fljótlega svo þung, að óbærilegt má kallast, og allt lendir í því, sem nú er komið að og meiningin er að laga og bæta eða leiðrétta að einhverju leyti. Það má því fullsanna, að pott verzlanirnar reikni þessa vexti, þá fá þær þá aldrei, þær fá sem sé hvorki vexti né höfuðstólinn, nema með sérstakri aðstöðu, eins og nú hagar til; og svo mun reynast framvegis, að þótt skuldum sé safnað og vextir reiknaðir, þá eru þar af verzlunum blátt áfram viðhöfð svik í tafli, ef færa á á reikning það, sem alls ekki kemur inn og allir vita, að ekki getur greiðzt. — Ég vænti því, að frv. þetta fái sæmilegar viðtökur í þessari hv. d., og ég vil leyfa mér að leggja til, að því verði vísað til 2. umr., að þessari lokinni, og til allshn.