17.11.1933
Neðri deild: 12. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 84 í C-deild Alþingistíðinda. (981)
29. mál, verslunarskudir og vaxtataka af verslunarskuldum
Héðinn Valdimarsson:
Þetta frv. er gömul afturganga hér í d. og hefir einungis skipt um flm., þannig að sá, sem vanur er að vera flm. og eini stuðningsmaður þess, er nú annar í röðinni, en hefir nú fengið tvo nýja í lið með sér af hinum nýkjörnu. Það, sem vakir fyrir flm., er áreiðanlega það, að gott sé að hafa skuldlausa verzlun, og sérstaklega, að það sé gott fyrir verzlanirnar. Þeir taka aðeins ekki með í reikninginn, hvernig viðskiptin gerast hér á landi, því að um leið og þeir vilja banna verzlunarskuldir, þá gera þeir engar ráðstafanir til þess, að þeir menn, sem þurfa á slíkum lánum að halda, geti fengið vörur í verzlununum, og þessi sami galli hefir verið á frv. frá upphafi, svo að það hefir alltaf verið skoðað endileysa. Við skulum einungis hugsa okkur, hvernig ein aðalstéttin, bændur, ættu að fara að, ef þeir hefðu halla af búskapnum og þyrftu á lánum að halda, eða útvegsmenn, sem lifa á lánum að mjög miklu leyti, bæði stórútvegurinn og smáútvegurinn, sem alls ekki er vóst, að geti gert upp fyrir áramót, enda vita allir, að árferði sjávarútvegsins er mjög misjafnt. Eitt árið geta menn greitt, en ekki annað. Eða þá verkamenn, sem víðast úti um land, og hér í Rvík að nokkru leyti, verða að nota verzlunarlán, hvað ættu þeir að hafa fyrir sig að leggja á tekjuleysistímum: Ekki er fé fáanlegt í slík lán í bönkum. Ekki hafa verkamenn atvinnuleysisstyrk. Og þeir menn, sem styðja þetta frv., vildu sjálfsagt ekki leggja fé til frekari atvinnubóta og tryggja þeim að geta haft ofan af fyrir sér. Það hlyti því að verða sú afleiðing af þessu frv., að um leið og það gengi í gildi hættu öll verzlunarlán hér á landi, ekki einungis til neytenda, heldur til bænda, verkamanna og sjávarútvegsmanna, og ekki einungis frá smásölunum, heldur einnig frá heildsölunum. Það yrðu allir að hafa nægilegt handbært fé til að geta verzlað. Það væri auðvitað æskilegt, ef þessir flm. gætu útvegað öllum, sem nú nota sjálfsagt tugi milljóna króna, fé til verzlunarviðskipta, en ég hygg, að þeim sé það ofviða, enda hugsa ekki út í þá hlið málsins. — Viðvíkjandi því að banna vexti af slíkum skuldum, þá myndi það hafa þau áhrif, að vöruverð yrði þeim mun hærra, því að auðvitað myndu verzlanirnar leggja á fyrir þeirri áhættu og kostnaði. Ég segi því fyrir mitt leyti, að mér finnst frv. þetta skjóta svo langt frá markinu, að ástæðulaust sé að láta það ganga til n.