17.11.1933
Neðri deild: 12. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 90 í C-deild Alþingistíðinda. (984)
29. mál, verslunarskudir og vaxtataka af verslunarskuldum
Flm. (Gísli Sveinsson):
Ég bjóst í sjálfu sér við því, að þetta frv., sem að sumu leyti er allmikið nýmæli, þó að nokkur hluti þess hafi komið áður fram á þingi að efni til, myndi þegar fá aðfinnslur og aths. við þessa umr., en mér þykir furðu lítið bragð að því, og finnst það vottur þess, að hv. þm. séu í raun og veru á líkri skoðun og við flm. um þetta mál.
Ég skal aðeins geta þess til andsvara hv. 2. þm. Reykv., að frv., eins og það í raun og veru skýrir sig sjálft, á alls ekki við heildsöluviðskipti, heldur aðeins við búðarviðskipti og smásöluviðskipti, og mun líka vera fullvíst, að heitið „verzlunarskuldir“ er ekki almennt notað yfir önnur viðskipti, enda tel ég það svo skýrt tekið fram í 1. gr. frv., að við megi hlíta og ljóst sé, hvað hér er átt við. Að öðru leyti tel ég aths. hans ekki snerta meginatriði málsins, svo að á þessu stigi þurfi að ganga inn á þær.
Það er gefið, að almenningur er þess ekki í kasti umkominn að borga upp sínar skuldir, en eins og ég tók fram, þá er mikill hluti almennings, sem sé bændur, kominn á annan rekspöl.
Það er tilgangurinn með Kreppulánasjóði að veita skuldugum bændum lán til þess að lækka skuldir þeirra. sé það nú gert og verði það gert á hann veg að verzlunarskuldir hverfi að miklu leyti hjá bændum, þá er ekki hægt að tala um verzlunarskuldir hjá þeim í svipinn. Það eru þá orðnar skuldir, sem standa í öðrum stofnunum. Spurningin er þá aðeins sú, hvort þessir sömu menn eigi að halda áfram, og hvort nokkur vill styðja að því, að þeir haldi áfram á þeirri óheillabraut, sem þeir voru á, eða hvort menn vilja taka höndum saman til þess að finna ráð til að sporna við því, að svo verði.
Ég get ekki fallizt á, að það sé svo naumur tími, sem mönnum er gefinn með þessu frv., eins og hv. 1. þm. S.-M. talaði um, að þeim sé ekki kostur að greiða skuldir sínar frá ari til árs. jafnvel þó ekki væri um annað að tala en skuldir fyrir framhaldandi og nauðsynlega úttekt. Skuld, sem stofnuð er á þessu ári, ætti eftir frv. að byrja að fyrnast frá næstu áramótum, en allt næsta ár er til þess að greiða skuldina, ef möguleikar eru fyrir hendi, og það má fullyrða, að afurðir landsmanna, eða bænda, eins og hv. þm. talaði um, eru komnar alla leið og uppgerð viðskipti fyrir þær, þegar kemur fram á næsta ár, og a. m. k. áður en því ári lýkur, ef þeir eru þess umkomnir að greiða viðskipti fyrir árið með söluandvirði afurða sinna, er það allt komið í kring þegar hættutíminn nálgast. Í annan stað, eins og ég tók fram áðan, geta menn, ef það er samkomulag við verzlunina, haldið áfram einhverju af sínum skuldum. Sumir telja þetta galla, en aðrir telja það kost, að möguleikar séu fyrir hendi, ef menn geta ekki greitt úttekt sína, að halda skuldinni að einhverju afram, með því að greiða af innlegginu, fyrst gömlu skuldina og síðan með samkomulagi nýju skuldina á næsta ári. Ég segi ekki, að þetta sé ákjósanlegt, en þetta er mögulegt og ekki hægt að setja undir þann leka, en ég geri ráð fyrir, að enginn kaupmaður eða verzlun vilji vinna að þeirri stefnu, að skuldir haldi áfram nema í sem allra smæstum mæli. En hitt er áframhaldandi atriði til umhugsunar, hvort ástæður landsmanna eru orðnar svo, að þeir komizt aldrei út úr ógöngunum, og þá er spursmálið orðið víðtækara. En ég fullyrði, að við megum ekki gera ráð fyrir því, að þessu verði að halda áfram — ekki gera ráð fyrir því, að almenningur sé svo aumlega staddur með atvinnuvegi sína, að honum sé ókleift að hafa viðskipti án þess að safna skuldum, sem verða eyðsluskuldir, eða fá lán, sem verða eyðslulán. — Hvað sem menn segja um það, að menn hafi ekki tekið, eins og hv. 1. þm. S.- M. talaði um, og muni ekki taka neinn óþarfa úr búð, þá vitum við allir, að þegar opnar eru verzlanir til þess að lána, taka menn einatt meira út en þeir nauðsynlega þurfa. Dæmin eru víða deginum ljósari, og það kemur ekki til mála, að því verði mótmælt með rökum. Það getur verið, að meginið af skuldum manna sé af nauðsyn og neyð til komið, en það verður að finna ráð til þess, að allt fari ekki út í hreina ófæru, því að ég fullyrði, að það er á þeirri leið, ef þessu óheilbrigða ástandi verður haldið við, en ég og meðflm. mínir mundum verða andmælendum þessa frv. þakklátir, ef þeir gætu bent á einhlítt ráð til að ná sama marki og stefnt er að í því frv., sem hér liggur fyrir, en það hefir ekki komið fram enn, og ég tel, að ekki sé hægt að stofna til annara eða frekari aðgerða um sinn en þeirra, sem talað er um í frv., til þess að komast eitthvað áleiðis.
Ég tel ekki þörf á að ræða frekar um þetta mál á þessu stigi þess; nema sérstakt tilefni gefist til þess, og býst ég við, að því verði vísað þá leið, sem ég fór fram á.