17.11.1933
Neðri deild: 12. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 93 í C-deild Alþingistíðinda. (990)
31. mál, virkjun Fljótár
Jón Sigurðsson:
Það mál, sem hér liggur fyrir, er um virkjun Fljótaár. fljótu bragði má ætla, að það sé fyrst og fremst mál Siglufjarðar, en svo er þó engan veginn. Eins og hv. flm. drap á, er ætlazt til, að virkjað verði vatnsfall í öðru héraði og tekinn eini fossinn, sem líklegur er til þess að koma að notum þar á mjög stóru svæði; þess vegna er ekki nema sjálfsagt að taka tillit til þeirra sveita, sem þar eiga hlut að máli. En nú er það svo, að frv., sem hér liggur fyrir, er algerlega samið af Siglfirðingum, af bæjarfógetanum þar, að ég hygg —, með hagsmuni Siglufjarðarkaupstaðar fyrir augum. Frv. virðist sniðið eftir lögunum um Sogsvirkjunina, en því smíði er þannig háttað, að það má telja, að öll þau ákvæði séu felld niður, sem tryggja hagsmuni ríkissjóðs og almennings. Ég skal aðeins í þessu sambandi nefna tvo dæmi. Þrátt fyrir það, að ríkissjóði er ætlað að ábyrgjast um 700 þús. kr., þá er felld niður 2. gr. þessara áðurgreindu laga, þ. e. ákvæði, sem taka til um, að ríkissjóður og atvmrh. hafi íhlutunarvald um undirbúning verksins og um það, hvernig það sé unnið, til þess að gæta hagsmuna almennings og ríkissjóðs. Í 2. gr. frv. eru sömuleiðis felld niður ákvæði, sem tryggja nærliggjandi sveitum að geta fengið rafmagn, annaðhvort frá aflstöðinni eða frá spennistöð á línunni til Siglufjarðar. Þetta ákvæði er geysimikils virði. Vegna þessa ákvæðis stendur t. d. Sunnlendingum opið, þegar Sogsvirkjunin er komin í framkvæmd, að fá rafmagn hvenær sem þeir eru undir það búnir að geta tekið það heim til sin. Aftur á móti er sett í þetta frv. ákvæði um, að Holtshreppur geti átt rétt á að fá allt að 200 hö., ef hann leggur fram hlutfallslegan stofnkostnað þegar í upphafi. Ég verð að lýsa því yfir, að eins og nú er ástatt, eru engar líkur til, að þessi hreppur muni geta notfært sér þetta á næstu árum, en eðlilega vilja íbúar þessarar sveitar ekki á nokkurn hatt sleppa þeim réttindum, sem þeir telja sig að réttu lagi eiga, til þess að geta haft aðgang að rafmagni, þar sem það er tekið í miðri sveitinni.
Það er þess vegna, að við þm. Skagf. munum bera fram brtt. við þetta frv. síðar meir, sem mun fara í þá átt að tryggja viðkomandi sveit, að hún geti fengið rafmagn, þegar ástæður hennar leyfa, með þeim takmörkunum, sem þarf að gera gagnvart því, að ekki séu gerðar of miklar kröfur til Siglufjarðar. Ég skal í þessu sambandi geta þess, að nú fyrir nokkrum árum var gert yfirlit yfir, hvernig þessum málum yrði bezt komið fyrir í Skagafjarðarsýslu, og vegamálastjórinn og Steingrímur Jónsson rafmagnsstjóri áætluðu, að þar yrði aðallega komið upp tveimur aflstöðvum, annari frammi í firði og hinni við Skeiðsfoss. Þá var gengið út frá því, að Siglufjörður og úthreppar héraðsins yrðu í félagi og þar væri um nægilegt afl að ræða fyrir baða þessa aðila. Þetta er að vísu framtíðaráætlun, en að þessu á að stefna í okkar rafveitumálum, og munum við þm. Skagf. flytja brtt. í þessa átt við frv.
Ég skal svo að lokum geta þess, að ég efast ekki um, að það geti orðið gott samkomulag milli okkar þm. Skagf. og hv. 1. þm. Eyf. um að breyta frv. í þessa átt.
Það á kannske ekki við að geta þess við þessa umr., að ég skil tæpast upphaf 6. gr. frv., málið er svo snúið og flókið, að það er lítt skiljanlegt, við hvað er átt, en ég saka hv. flm. ekki um það, því að hann mun hafa flutt frv. óbreytt. Ég mun svo, eftir að hafa gert grein fyrir minni afstöðu, greiða frv. atkv. til 2. umr. og n.