27.11.1933
Neðri deild: 20. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 96 í C-deild Alþingistíðinda. (997)

31. mál, virkjun Fljótár

Halldór Stefánsson:

Þessu frv. var vísað til fjhn. 17. þessa mán., og á fundi í n. nokkru síðar, 23. þ. m., var málið tekið fyrir og sent til umsagnar rafmagnsráðunaut ríkisins, en umsögn hans í málinu hefir ekki borizt ennþá. Átti ég tal við ráðunautinn í gær um málið, og tjáði hann mér, að umsögnin mundi koma í dag. Hinsvegar hefir n. ekki séð sér fært að gera neinar till. í málinu fyrr en henni hefir borizt umsögn ráðunautsins.