23.10.1934
Neðri deild: 17. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 823 í B-deild Alþingistíðinda. (1007)

22. mál, verkamannabústaðir

Jakob Möller [óyfirl.]:

Það var lítið, sem ég þurfti að segja. - Hv. 6. landsk. var að mótmæla því, sem sagt hefir verið, að jafnaðarmenn væru sérstaklega fylgjandi sambyggingum, í mótsetningu við aðra, sem væru með sérbyggingarfyrirkomulaginu, og tók sjálfan sig sem dæmi. Einstök dæmi sanna auðvitað ekkert um þetta, og raunar er það hæpið að skilja það, sem sagt var, þannig, að jafnaðarmenn séu það almennt. Hitt sagði ég, og hv. þm. reyndi ekki að hnekkja því, að hugsanlegt væri, að hv. 2. þm. Reykv. og aðrir forsprakkar jafnaðarmanna vildu efla múgveldið með því að safna fólki saman í slíkar íbúðir. En hitt er líka kunnugt, að ýmsir jafnaðarmenn hafa mikla sjálfstæðistilhneigingu, eins og hv. 6. landsk. Enda er það vitanlegt, að margir jafnaðarmenn eru í byggingarfélagi sjálfstæðra verkamanna, sem kjósa að búa í sérstökum húsum.

Í öðru lagi talaði hv. þm. um það, að ef byggingarfél. væru mörg, gæti það orðið til þess, að menn yrðu að bíða svo eða svo lengi eftir íbúðum. Ég get ekki séð, hvers vegna það þarf að vera.

Annars var það einkennilegt, að uppistaðan í rökum hv. þm. gegn því að hafa fleiri en eitt byggingarfélag í sama bæ, var, að ef þau væru fleiri en eitt, þá gæti tala þeirra orðið ótakmörkuð. Um þetta þarf ekki lengi að ræða hér, vegna þess að engin till. liggur lengur fyrir um það. En um það er aðeins að ræða, hvort eigi að vera fleiri en tvö byggingarfélög í bæjum, sem hafa fleiri en 10 þús. íbúa. En þrátt fyrir þetta flytja þeir ræður, sem ganga út á að rökstyðja, hve skaðlegt það geti orðið, ef byggingarfélögin séu mörg í sama bæ. Þetta sýnir, hve berskjaldaðir þeir eru um það, sem nú liggur fyrir, þegar aðeins er um það að ræða, hvort félögin megi vera tvö eða aðeins eitt.

Í gamla byggingarfélaginu eru á annað hundr. félagar. En þegar stofnað var annað félag, þá gengu í það margir, jafnvel allt að helmingi fleiri en voru í hinu. Þessir menn hefðu a. m. k. ekki komið fram strax, ef þetta síðara byggingarfélag hefði ekki verið stofnað, af eðlilegum ástæðum, sem áður hefir verið greint frá, vegna þeirra pólitísku yfirráða, sem menn finna, að ríkja í gamla félaginu, og í annan stað af því, að menn hafa fengið þá trú, að það félag ætlaði að einskorða sig við sambyggingarfyrirkomulag. Þetta hvorttveggja hefir fælt menn frá og staðið því fyrir þrifum, að eins miklar framkvæmdir gætu orðið hjá félaginu eins og að öðrum kosti. Það er því auðsætt, að hver maður, sem meinar, að það sé mest um vert í sambandi við byggingarfélagsskap, að sem mest sé framkvæmt, hlýtur að verða því fylgjandi, að félögin megi vera fleiri en eitt í stærstu kaupstöðum, því að það er áreiðanlegt, að með því yrði meira að gert. Jafnvel mundu félögin hafa yfir meiri peningum að ráða. Þar yrði ekki aðeins um aukin framlög félagsmanna að ræða - sem þó auðvitað yrðu hlutfallslega þeim mun meiri, sem fleiri yrðu félagar í þeim í heild -, heldur af því, að gera má ráð fyrir, að starfsmenn sjóðstjórna verði háðir vissu íhaldi, ekki sízt á þessum tímum, þegar menn kveinka sér við lántökum. En þegar knúið er á af tveimur aðilum, verður frekar látið undan með að veita lán heldur en ef knúið er á aðeins af einum aðila í þessu efni. Það er því ólíkt heppilegra að hafa félögin fleiri en eitt, og andstæðingar þess fyrirkomulags standa gersamlega rökþrota, hvar sem leitað er að.