20.11.1934
Neðri deild: 41. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 832 í B-deild Alþingistíðinda. (1029)
22. mál, verkamannabústaðir
Thor Thors:
Ég og hv. 8. landsk. berum fram brtt. á þskj. 513. Aðalbreyt. okkar er gamall kunningi hér í d., því að shlj. brtt. var samþ. hér við 3. umr. málsins. Þessu máli hefir nú verið spillt í Ed., og nú er það ákveðið í frv., að ekki megi nema eitt byggingarfélag verkamanna starfa í hverjum kaupstað, hvar sem er á landinu. Ég vil nú vísa til þeirra almennu röksemda, sem fram hafa verið færðar við fyrri umr. málsins fyrir því, að það væri æskilegra, sanngjarnara og heppilegra, að þessi félagsskapur væri ekki, svo mjög sem sumir hv. dm. ætlast til, bundinn beinlínis við einstaka menn, heldur verði þeim verkamönnum, sem þess óska, gert kleift að notfæra sér þau hlunnindi, sem þessi löggjöf hefir fram að bjóða.
Því hefir verið haldið fram af þeim mönnum, sem þykjast vilja sýna viðleitni til þess að líta ópólitískt og sanngjarnt á málið, að sá félagsskapur, sem starfað hefir hér í Rvík að þessum málefnum undir forustu hv. 2. þm. Reykv., sé að öllu leyti ópólitískur. Við sjálfstæðismenn höfum við fyrri umr. málsins mótmælt því og talið, að þessi félagsskapur starfaði á pólitískum grundvelli, undir forustu jafnákveðins stjórnmálamanns og hv. 2. þm. Reykv. er. Jafnaðarmenn hér í d. vildu mótmæla þessu, en svo hefir sá atburður skeð í þessu máli síðan umr. um það fóru síðast fram hér, að það er augljóst, að hér er um pólitískan félagsskap að ræða. Þegar risgjöld hinna nýju verkamannabústaða voru hátíðleg haldin, voru dregnir fánar við hún, og maður skyldi nú ætla, þar sem hér er um fyrirtæki að ræða, sem er styrkt af ríkisvaldinu og sömuleiðis af sveitar- og bæjarsjóðum, að íslenzki fáninn hefði blakt þar við hún. Svo var þó ekki gert, heldur blöktu þar eingöngu rauðir fánar, ýmist alrauðir eða með flokksmerki Alþýðuflokksins. Ég vil nú spyrja hv. þm.: Hvað finnst mönnum tákn pólitískrar starfsemi, ef það er ekki einmitt þetta, sem fram hefir komið í þessu máli? Ég vil nú vona, að þeir hv. þm., sem við fyrri umr. þessa máls hafa viljað sýna sanngirni í því, sannfærist um það, að búið er að draga málið inn á pólitískan grundvöll. Það er óheppilegt, og þess vegna vona ég, að menn fallist á það, að tveimur byggingarfélögum verði leyft að starfa hér í Rvík. Ég álít allt annað ósæmilegt, þar sem hér er í rauninni um opinbert fyrirtæki að ræða, sem styrkt er af ríkissjóði og einstökum bæjar- og sveitarsjóðum. Það getur ekki verið tilgangur löggjafans að hlynna að eða að fyrirskipa, að þessi starfsemi sé dregin algerlega undir pólitíska viðleitni, og að hinn rauði fáni sé þar með látinn vera tákn þessa fyrirtækis.