20.11.1934
Neðri deild: 41. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 843 í B-deild Alþingistíðinda. (1042)

22. mál, verkamannabústaðir

Hannes Jónsson [óyfirl.]:

Hv. þm. V.-Ísf. sagði, að hér væri ekki um venjulegt samvinnufélag að ræða, af því að það nyti svo mikils styrks frá ríkinu. En ég skal benda á annan samvinnufélagsskap, sem ekki hefir verið settur í neinar viðjar, og á ég þar við mjólkurbúin fyrir austan fjall. Þau hafa starfað hlið við hlið og fengið styrk úr ríkissjóði. Ég hefi heyrt suma halda því fram, að þarna ætti að vera aðeins eitt bú, en löggjafinn hefir ekki viljað hindra, að þau væru fleiri, og á þessu þingi hefir verið búið svo um, að þau fengju sömu aðstöðu. Það hefir að vísu heyrzt, að sumir vildu leggja Mjólkurbú Ölfusinga niður og þvinga það inn í hitt búið. En það hefir ekki verið gert ennþá, og það hefir fengið sama rétt. Hv. þm. V.-Ísf. heldur því fram, sem rétt er, að það væri ákjósanlegast, að aðeins eitt félag væri á hverjum stað. En meðan menn eru ekki svo samstæðir, að það geti gengið, virðist ekki ástæða til að hindra stofnun fleiri félaga. Samvinnufélagsskapurinn er hér í tvennu lagi, einnig á Akureyri og í Vestmannaeyjum, og víst á fleiri stöðum. Ég er því sammála, að gott gæti verið að hafa hér samstarf, en slíkt á ekki að vera lögþvingað.

Hv. 9. landsk. talaði um hið ótakmarkaða frelsi manna, menn gætu gert út togara, byggt hús, verið í félögum o. s. frv. Það var gott, að þetta dæmi var nefnt, því að ef til vill liggur sú hugsun hér á bak við, að ef hér risi t. d. upp eitt samvinnufélag til þess að gera út togara, þá mætti ekki stofna annað í sama skyni, heldur aðeins þetta eina. En með slíkri stefnu væri verið að færa athafnalífið í svo þröngar kvíar, að brýn nauðsyn væri að sporna á móti því strax hér á Alþingi. Mér er kunnugt um, að oft hefir verið rædd meðal samvinnumanna sú hætta, sem af því gæti leitt, að annað félag risi upp á sama sviði. En menn eru svo víðsýnir þar, sem samvinnufélögin hafa náð mestum þroska, að þeim hefir ekki dottið í hug að fara fram á styrk frá löggjöfinni til þess að hindra það, enda munn slíkir fjötrar helzt settir þar, sem samtakakrafturinn er minnstur, í því skyni að kenna mönnum að vinna eftir valdboði. En ef ekki er hægt að láta samvinnufélögin þroskast innan frá, þá er það ekki hægt svona. Ég hygg, að ef skilyrði eru fyrir tvö félög hér, gæti það orðið til bóta að ýmsu leyti. Það mundi verða ríkari hvöt fyrir stjórnir þeirra að gera meðlimi sína ánægða, með því að sína óhlutdrægni í starfinu, með því að laða menn að í stað þess að hrinda þeim frá.

Hv. þm. V.-Ísf. talaði um, að erfitt kynni að verða með úthlutun lóða o. fl. og hætta gæti verið á hlutdrægni frá hálfu bæjarstj. En ef menn eru hræddir við slíka hlutdrægni, er rétt að athuga, hvort ekki kynnu að vera gróðrarskilyrði fyrir slíkt, þó að félagið væri aðeins eitt. Ég er hræddur um, að sumir kynnu að verða svo sinnaðir, að þeir vildu fyrst og fremst halda völdum sínum í félaginu og hirtu þá minna um að hlynna að andstæðingum sínum innan félagsins.