20.11.1934
Neðri deild: 41. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 859 í B-deild Alþingistíðinda. (1054)

22. mál, verkamannabústaðir

Jakob Möller [óyfirl.]:

Það er aðeins af því, að hv. þm. V.-Ísf. fór að slá á þenna streng í sinni síðustu ræðu, um að honum virtist að stæði upp á sjálfstæðismenn um rök í þessu máli, að ég get ekki orða bundizt, því að mig undraði þetta. Það, sem hér er um að ræða, er það, að verið er að breyta lögum frá því, sem þau áður voru. Þess vegna er það skylda þeirra, sem vilja breyta lögunum að færa sönnur á, að þess þurfi, en nú hefir hv. flm. þessa frv., sem hér er deilt um, alveg láðst að færa fram nokkrar sönnur á það. Nú er aðeins um það deilt, hvort fært þyki að hafa tvö slík byggingarfélög í Rvík. Því er haldið fram, að dýrara muni vera að byggja, ef byggingarfélögin eru tvö. Nú er það upplýst, að í því félagi, sem nú er starfandi, hefir verið byggt yfir í kringum 50 fjölskyldur. Í því félagi, sem hér er um að ræða að útiloka frá slíkri starfsemi, er um 350 manns, sem vilja fá tækifæri til að byggja yfir sig. Það er hægt að mynda úr því sjö 50 manna flokka til að byggja. Er nú hugsanlegt, að það verði dýrara fyrir þessa sjö 50 manna flokka, hvern fyrir sig, að byggja, heldur en þessa tvo 50 manna flokka, sem eru í Byggingarfélagi verkamanna? Allir sjá, að þetta nær ekki nokkurri átt, svo sú ástæða að banna fleiri en eitt félag í Rvík er þar með fallin.

Þá hefir verið talað um, að slík félög mættu ekki vera pólitísk. Það er vitanlegt að Byggingarfélag verkamanna, sem þegar er stofnað, er stofnað af forráðamönnum pólitísks flokks, og hv. 2. þm. Reykv., sem er einn af mest ráðandi mönnum þess flokks, er einmitt formaður í þessu félagi. Hinsvegar hefir verið stofnað hér annað félag, sem er kallað Byggingarfélag sjálfstæðra verkamanna. Og það er rétt, að það er stofnað fyrir forgöngu ýmissa manna úr Sjálfstfl. Er það þá svo, að það megi að vísu stofna slík félög fyrir forgöngu stjórnmálamanna, en þeir menn megi bara ekki vera úr Sjálfstfl.? Ég sé ekki, að það hafi verið dauðasök fyrir Byggingarfélag sjálfstæðra verkamanna, að það er stofnað fyrir forgöngu sjálfstæðismanna, ef það er ekki dauðasök fyrir Byggingarfélag verkamanna, að það er stofnað af forkólfum Alþýðuflokksins.

Þetta er önnur aðalástæðan, sem færð er fyrir því, að ekki megi hafa nema eitt byggingarfélag hér í Rvík. Þessi rök eru fallin, og ekki hefir verið sýnt fram á nokkrar aðrar ástæður fyrir því, að nauðsynlegt sé að hafa aðeins eitt byggingarfélag, heldur þvert á móti hefir verið sýnt fram á það með rökum, að miklu meiri líkur eru til, að aðstoð hins opinbera til þess að bæta úr húsnæðisvandræðunum komi að miklu betri notum, ef byggingarfélögin eru fleiri en eitt, með því að meiri áhugi og meiri framkvæmdir mundu vera undir slíkum skilyrðum.

Samanburður hv. þm. V.-Ísf. á fisksölusamlaginu og byggingarfélaginu er svo gersamlega út í hött, því að fyrst og fremst hafði hann þann fyrirvara, að það þyrfti að vera sannað, að nauðsyn væri að hafa eitt fisksölusamlag, en það hefir honum ekki tekizt að sanna um hitt, að nokkur nauðsyn sé á því að hafa eitt byggingarfélag. En hitt er auðvitað hugsanlegt, að það sé nauðsyn á að hafa aðeins eitt fisksölusamlag, en þar er ólíku saman að jafna. Svo þetta hjálpar ekki heldur neitt. Það stendur upp á hv. flm. þessa frv. um rök fyrir því, að nauðsynlegt sé að banna tvö byggingarfélög hér í Rvík.

Hitt er rangt hjá hv. þm., að það hafi nokkurntíma verið viðurkennt af Sjálfstfl., að nauðsynlegt væri að hafa eitt byggingarfélag í smærri bæjum en Rvík. Það hefir aldrei verið gert.

Ég vil svo að lokum benda á enn eina ástæðu, er stjórnarliðar, sem hér berjast sameinaðir fyrir því ofbeldi, er hér á að framkvæma, geta ekki komizt framhjá. Það er til önnur löggjöf, sem þeir sjálfir hafa beitt sér fyrir, og það er löggjöfin um samvinnubyggingarfélög. Þeir hafa ekki séð nokkra nauðsyn þess að fyrirskipa, að í því sambandi skyldi aðeins eitt byggingarfélag vera leyft í hverjum kaupstað. En hver er þá munurinn? Þeir hafa algerlega þagað við þessari bendingu, sem hv. á. þm. Reykv. gaf þeim, og með því sýna þeir einmitt, að þeir eru gersamlega rökþrota, og þess vegna vil ég aðeins undirstrika það, að það er ástæðulaust af hv. þm. V.-Ísf. að tala hér eins og það stæði upp á andstæðinga hans um að færa rök fyrir sínu máli.