10.10.1934
Neðri deild: 6. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 877 í B-deild Alþingistíðinda. (1080)
26. mál, vinnumiðlun
Sigurður Kristjánsson:
Hv. 1. landsk. sagði með miklu yfirlæti, að það væri óþarfi að svara því, sem ég hélt fram í síðustu ræðu minni, af þeirri einföldu ástæðu, að ég hefði sagt það. Ég held, að það hefði verið miklu einfaldara fyrir hv. þm. að játa hreinlega, að hann gæti ekki svarað því. Hann hefir aldrei þótt sú stjarna, að slíkt hefði orðið honum til vanvirðu, því að venjulega þykir leggja rökfræðilegan ódaun úr því húsi, sem hann lætur mælskuljós sitt skina i. Hv. þm. hefði því sjálfs sín vegna átt að geyma sér þessa fyndni sína, a. m. k. þangað til hann var búinn að vinna sér eitthvað meira til frægðar í þessum sal en hann er búinn að ennþá, þá má vel vera, að einhver hefði tekið hann alvarlega.
Hv. 3. þm. Reykv. tók það réttilega fram, að ekki væri með neinum rétti hægt að halda því fram, að ráðningaskrifstofan hér í Rvík hefði beitt hlutdrægni í úthlutun á vinnu, þar sem hún er ekki einu sinni farin að starfa ennþá. Þessar ásakanir hv. þm. í garð þessarar skrifstofu eru því aðeins vindhögg. Þó að það sé maður úr Sjálfstfl., sem á að veita skrifstofu þessari forstöðu, þegar hún tekur til starfa, þá ætti það sízt að vera mótmæli gegn henni, því að eru það kannske ekki sjálfstæðismenn, sem hafa verið og eru aðalatvinnurekendur þessa lands og úthluta því verkamönnum og sjómönnum mestum hluta af vinnu þeirra, og það undantekningarlaust án manngreinarálits, alveg án tillits til þess, hvar menn eru í stjórnmálum. Það sýnir því og hefir sýnt, að þeir eru langt hafnir upp yfir þann tuddaskap, sem sósíalistar eru að ætla þeim nú. Annars held ég nú, að það hefði verið erfitt að fá þann mann til þess að veita skrifstofu þessari forstöðu, sem ekki hefði verið merktur einhverju pólitísku merki. Ef þessi maður, sem nú hefir verið ráðinn forstöðumaður skrifstofunnar, hefði ekki valizt til þess, þá má vel vera, að til þess hefði valizt maður úr flokki sósíalista, og þá er ég þess fullviss, að enda þótt hann hefði verið þekktur að rangsleitni og uppvöðsluhætti, þá hefði frv. þetta ekki komið fram.
Hv. 2. þm. Reykv. sagði, að þessar umræður ættu ekki við á þessu stigi málsins. Haldi hv. þm. þessu fram í fullri alvöru, sýnir það aðeins, að hann hefir ekki munað þingsköpin of vel, því að hvorki ég né aðrir andmælendur frv. höfum rætt einstakar greinar þess. Hitt mun rétt vera, að slíkar umræður sem þessar koma Alþýðuflokksmönnum hálf illa, og er því ekkert undarlegt, þó að þeir vilji komast hjá þeim, að svo miklu leyti sem þeir geta. Ef maður athugar frv. þetta, þá verður strax ljóst, að hér getur verið um stórt starfsmannabákn að ræða. Stjórn hverrar vinnumiðlunarskrifstofu skal skipuð fimm mönnum. Stjórnin má svo aftur ráða forstöðumann fyrir skrifstofuna, og hann getur svo ráðið sér skrifstofustjóra, ef honum svo sýnist. Hér er um að ræða þrjár starfsmannadeildir, allar launaðar, sem ráðh. getur lagt á fátæka smákaupstaði, ef honum sýnist. Það hefir sem kunnugt er viðgengizt í kaupstöðum landsins að úthluta vinnu á meðal verkamanna, en það hefir alltaf verið gert bæjarfélögunum að kostnaðarlausu. Ég hefi reynt að afla mér upplýsinga um það, eftir hvaða reglum almennt hafi verið farið um úthlutun þessarar vinnu, og fengið fullar sannanir fyrir því, að eingöngu hefir verið farið eftir því, hvernig heimilisástæður vinnuþiggjenda hafa verið, en aldrei grennslazt eftir pólitískum skoðunum manna. Þetta fimbulfamb rauðliða um misbeiting á úthlutun atvinnubótavinnunnar er því allt út í bláinn og hefir við engin rök að styðjast.
Þá hefir hv. 2. þm. Reykv. fundið allmjög að því, að formaður Varðarfél. skuli hafa hlotið forstöðu vinnuúthlutunarskrifstofu þeirrar, sem Rvíkurbær hefir ákveðið að setja á stofn. Þeir, sem í raun og veru þekkja þann mann, munu vera ánægðir með þá ráðstöfun, því að hann er maður mjög varfærinn og laus við allt ofstæki. Annars kemur það úr hörðustu átt, að hv. 2. þm. Reykv. skuli vera með hávaða út af ráðningu þessa manns, því að ég býst við, að hann, sem er formaður verkamannafél. Dagsbrúnar, telji sig vel til þess fallinn, á það þó að vera ópólitískur félagsskapur. En eins og kunnugt er, þá er hann einhver mesti ofstækismaður í pólitík, sem til er á þessu landi. Hann, sem rennir sér eins og hrútur á hvað sem fyrir er og ætlar allt undir sig að brjóta með frekju og valdi.
Að síðustu skal ég taka það fram, að ég mun greiða atkv. á móti þessu frv., af því að ég tel það óþarft og af illum toga spunnið.