10.10.1934
Neðri deild: 6. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 880 í B-deild Alþingistíðinda. (1082)

26. mál, vinnumiðlun

Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Ég ætla ekki að lengja þessar umr. mikið, en ég hjó eftir nokkrum orðum hjá hv. 3. þm. Reykv., sem ég get ekki látið ósvarað með öllu. Hann telur, að sú stj., sem gert er ráð fyrir í þessu frv. geti ekki orðið hlutlaus. Hv. þm. virðist meina hlutlaus í pólitík. Ég skal játa, að þar sem menn eru pólitískir, er erfitt að mynda pólitískt hlutlausa stj., a. m. k. til þess að hafa afskipti af málum, sem skipta menn jafnmiklu og úthlutun vinnu, eins og gert er ráð fyrir í þessu frv. Ég vil slá því föstu, að ómögulegt sé að skipa stj., sem sé hlutlaus í pólitík, og það hefir ekki verið ætlun ríkisstj. að gera það, heldur er ætlazt til, að fulltrúar hinna ýmsu aðila, fulltrúar verkamanna, atvinnurekenda og meginflokka bæjarstjórnarinnar eigi allir sæti í þessari stj., og geti hvorir um sig komið fram með sínar skoðanir og beitt sínum áhrifum og litið eftir, að ekki sé beitt ranglæti, en með þessu skipulagi er reynt að koma í veg fyrir það.

Það er rétt, sem hv. þm. tók fram, að ætla má, að bæjarstjórnin kjósi 2 menn, sinn úr hvorum flokki, A. S. Í. einn mann og atvinnurekendur annan, og oddamanninn skipar svo sá ráðherra., sem þetta heyrir undir. Ef hann er Alþýðuflokksmaður, er sennilegt, að hann skipi mann, sem honum stendur nærri, og sama er að segja, ef það er sjálfstæðismaður, og það hefði t. d. fyrrv. ráðh. gert. Þetta er eðlilegt, því að ráðh. leggur fram fyrir ríkisins hönd það fé, sem skrifstofan þarf úr ríkissjóði til atvinnubóta og þess kostnaðar annars, sem um er að ræða í þessu sambandi.

Ég álít, að ekki sé hægt að komast nær sanngirni í þessu efni en gert er í þessu frv., því að í því er tekið tillit til allra. Þess hefir ekki verið gætt við skrifstofu þá, sem bæjarstjórn Rvíkur ákvað að setja á stofn. Ég skal ekki ámæla þeim mönnum, sem þar eru, en ég hygg það engum vafa bundið, að þeir eru ákveðnir með það fyrir augum, að þeir eru í fyrsta lagi góðir starfsmenn hjá forráðamönnum Sjálfstæðisflokksins og fjarri því að eiga ítök hjá öðrum flokkum. Þetta vekur að sjálfsögðu tortryggni hjá verkamönnum, sem eru þeim andvígir, en þurfa að leita til skrifstofunnar um liðsinni.

Um þá kenningu hv. þm., að löggjafinn ætli að breyta lýðræðinu, þarf ekki að fjölyrða. Ég þekki ekki aðrar þingræðisleiðir en að frv. séu flutt á Alþ., og þar sé það meiri hl., sem nægir með eða móti. Ef hv. þm. þekkir aðrar betri leiðir, væri æskilegt, að hann benti á þær, en það er alveg víst, að það er ekki lýðræði, ef minni hl. á að ráða á Alþ.