10.10.1934
Neðri deild: 6. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 881 í B-deild Alþingistíðinda. (1084)
26. mál, vinnumiðlun
Pétur Halldórsson:
Það kom greinilega í ljós hjá hæstv. ráðh. við þessar umr. núna, að það er rétt, sem ég lét í ljós við umr. í gær, að þetta frv. væri eingöngu komið fram til þess að draga úr yfirráðum meiri hl. bæjarstjórnarinnar hér, yfir þessari skrifstofu, sem ákveðið hefir verið að setja upp. Ég hefi ekki heyrt hér flutt nokkurt orð, sem réttlæti, að ráðh. sé gefin heimild til að fyrirskipa, að slíkar skrifstofur séu settar á stofn í hverju kauptúni landsins. Það var rangt hjá hv. 1. landsk., þegar hann sagði, að engin hætta væri á ferðum, vegna þess að þetta mundi verða fyrirskipað eingöngu eftir vilja bæjarstjórnanna. Þetta er rangt, því að ráðh. getur gert það á móti vilja þeirra. Það var eftirtektarvert, að hann skyldi byrja fyrstu ræðu sína hér á Alþ. með þessum ranga málaflutningi.
Þetta mál verður allt augljósara, þegar það er athugað, að eins og nú er, áður en þessi l. koma til sögunnar, eru í bæjarráði Rvíkur 5 menn, sem skipaðir eru af bæjarstj., en þessi skrifstofa verður aðallega undir stjórn bæjarráðsins. Það hefir framkvæmd bæjarmála sérstaklega með höndum. Þessir 5 menn eru nú í samræmi við meiri hl. bæjarstj. hér, og af þeirri einni ástæðu mega þeir ekki hafa þetta undir höndum, eða m. ö. o., af því að þar er ekki „rauður“ meiri hl., eins og það hefir verið orðað. Og þess vegna er þetta frv. fram komið, að þessu vill minni hl. bæjarstj. Rvíkur breyta með þingmeirihluta. Ef þetta er ekki að taka ráðin yfir bæjarmálum úr höndum bæjarstj. með ofbeldi, þá veit ég ekki, hvað hægt er að kalla því nafni. Tilgáta mín var rétt, þetta er tilefni og tilgangur frv. Er því verður nú skorið hér, hvort á að fara út þá braut í þessu efni, að nota meirihlutavald á Alþ. til þess að beygja meirihlutavald sveitarfélaga, þar sem svo stendur á, að ekki er sami meiri hl. á Alþ. og í sveitarfélögunum. Ef þetta frv. verður samþ., þá er það augljóst, að þeir, sem að þessari löggjöf standa, svífast þess ekki, að taka völdin með valdi hér á Alþ.