10.10.1934
Neðri deild: 6. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 884 í B-deild Alþingistíðinda. (1088)

26. mál, vinnumiðlun

Jakob Möller:

Ég ætla ekki að fara að ræða um það við hv. 2. þm. Reykv., hvernig ég hafi rækt mitt starf. Ég þykist vita, að þessi hv. þm. telji sig eiga nokkurn þátt í því, að mér er ekki gefið tækifæri til þess að rækja það lengur. En beina ástæðan til þess, að ég var sviptur starfinu, var sú, að ég var að rækja það. Það mátti þessi þm. ekki sjá né heyra. Hann segir, að það séu l. félagsins, að félagsmenn megi ekki vinna með utanfélagsmönnum, en hann bannaði mönnum að vinna, sem voru félagsmenn, af því að skilyrði til þess að mega vinna, er að hafa verið ákveðinn tíma í Dagsbrún. Þetta veit hv. þm. vel, og það þýðir ekkert fyrir hann að standa upp til að afsanna þetta með einhverjum lygum.