23.10.1934
Neðri deild: 17. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 913 í B-deild Alþingistíðinda. (1106)

26. mál, vinnumiðlun

Sigurður Kristjánsson:

Ég hefi ekki miklu að bæta við það, sem ég sagði við 1. umr. málsins. En þó hafa komið fram brtt., sem ég vil minnast á.

Ég tel mér skylt að taka tillit til þeirra bóta, sem reynt hefir verið að gera. Ég vil heldur þetta frv. með þeim umbótum, sem eiga að vera fólgnar í þessum brtt., heldur en að fá það jafnilla skapað og það var frá fyrstu hendi. - Brtt. eru frá hv. þm. V.-Ísf. Af þeim er sú 4. og þó sérstaklega 2. til mikilla bóta. Ég tel mér því skylt að fylgja þeim. 2. brtt. viðurkennir þann sannleika; að bæjarfél. eigi raunverulega rétt á því að ráða yfir þessum málum, eins og öðrum málum sínum.

Hv. þm. Vestm. hefir borið fram brtt. við 1. gr. frv., en hún hljóðar svo í frv.: „Í hverjum kaupstað landsins skal stofnuð vinnumiðlunarskrifstofa, ef bæjarstjórn hlutaðeigandi kaupstaðar ákveður, eða ef atvmrh. mælir svo fyrir“.

Það er þessi síðasta setning, sem hv. þm. Vestm. leggur til, að felld verði burt úr frv., og er ég því samþykkur.

Það er merkilegt, að fram skuli hafa komið frv. með slíkri byrjun: „Í hverjum kaupstað skal stofnuð vinnumiðlunarskrifstofa, ef bæjarstjórn kaupstaðarins ákveður“.

Það er engum vafa undirorpið, að slíkar skrifstofur verða stofnaðar, ef bæjarstj. kaupstaðanna ákveða það. Hver skyldi annars geta bannað þeim það? Það er svo, að bæði kaupstaðir og þorp geta sjálf annazt þessi mál sín. En þau gera það ekki á þann hátt, að sett séu upp til þess stór skrifstofubákn með mörgum launuðum mönnum. Þetta er það, sem ég lagði áherzluna á við 1. umr. og hv. þm. Vestm. sýndi líka fram á, að það er óþolandi, að Alþ. skipi smákaupstöðum og þorpum að stofna til svo mikils kostnaðar til að framkvæma hluti, sem þeir mundu gera hvort sem væri kostnaðarlítið eða kostnaðarlaust. Þetta mál hefir verið framkvæmt svo þar, sem ég þekki til, að vinnumiðlunin hefir verið framkvæmd af sérstökum n. og bæjarstjórum þar sem þeir eru, og það kostar lítið eða ekkert. Annað mál er, þar sem mikið fjölmenni er saman komið, eins og hér í Rvík. Þar verður ekki komizt hjá að gera alveg sérstakar ráðstafanir. Hitt er ekki nema óþarfur kostnaður, að setja þurfi á stofn stórt skrifstofubákn, sem kosti stórfé, því að bæjarráðið hefir þetta hvort sem er á hendi að miklu leyti.

Ég kann illa við það, að menn séu að koma fram grímuklæddir í þessu máli. Það er hvort sem er alveg ljóst, að hér er ekki á ferðinni mál til þess að breyta óréttlæti í réttlæti eða til að koma í veg fyrir, að vinnu verði miðlað hlutdrægt. Ég veit ekki til, að hér hafi komið fram nokkurt orð, sem bendir til þess, að nokkur hlutdrægni hafi hér átt sér stað. Það vita allir, að frv. er til þess, að hægt sé að miðla vinnunni hlutdrægt. Það er því sama, hvaða grímu þeir setja upp í þessu máli, það skín alltaf í þessa seku ásjónu þeirra.

Ég ætla ekki að svara miklu þessari bunu, sem við urðum að sitja undir frá hv. 9. landsk. Það væri þó ástæða til að fara út í það mál, hvað hans flokksmenn hafa gert til að skapa atvinnuleysi. Það er stórt og mikið áhyggjumál, ekki aðeins fyrir Rvík, heldur fyrir allt landið. Ég ætla þó að sleppa því að þessu sinni. En út af þeirri miklu vandlætingu, sem hv. 2. þm. Reykv. var með út af því, að hv. 8. landsk. taldi, að svona ofbeldi gæti valdið sprengingu, vil ég segja honum, að það þarf ekki að fara neitt dult með það, að hann og hans flokksmenn hafa sýnt mönnum framan í það ástand, að hér getur orðið hættuleg sprenging. Þeir hafa sjálfir staðið hér fyrir svo alvarlegum upphlaupum, að nærri hefir legið, að af því leiddi dauða margra manna, og af því leiddi limlestingar og stórmisþyrmingar. Svo látast þessir menn vera undrandi yfir því, að nokkur skuli láta skína í það, að óréttlæti og ofbeldi geti leitt af sér óróa og kannske slys. Ég veit ekki betur en að þessir menn séu beinlínis þyrstir í það. Mig minnir, að þeir hafi blátt áfram gert hryðjuverkadaginn 9. nóv. að hátíðisdegi. Svo dýrðlegt fannst þeim, að það skyldi vera hægt að koma af stað upphlaupi, sem leiddi til limlestinga og stórmeiðsla. Þeir héldu hátíð sama mánaðardag árið eftir, og munu hafa gert það síðan á hverju ári.

Það er rétt, sem hv. 8. landsk. sagði, að það verður að fara gætilega að því að beita ofbeldi til að taka ráðin af sveitar- og bæjarfél. í þeim málum, sem þau hafa rétt til að ráða sjálf, því að það er óviturlegt að leika menn svo hart, að þeir grípi til þess óyndisúrræðis að verja sig sjálfir.

Ég mun svo ekki hafa þetta mál mitt lengra, en að endingu vil ég taka það fram, að þótt ég greiði atkv. með þessum brtt., sem ég nefndi, þá er ég ekki fyrir það samþykkur frv. í heild.