23.10.1934
Neðri deild: 17. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 918 í B-deild Alþingistíðinda. (1110)

26. mál, vinnumiðlun

Sigurður Einarsson [óyfirl.]:

Það er í annað sinn í dag, að háttv. þm. G.-K. gerir mig persónulega að umtalsefni hér í hv. d. Á það að vera til þess að gera mál mitt tortryggilegt. Með þessu hefir þessi frægi siðameistari deildarinnar brotið geipilega þau l., sem hann vill láta gilda gagnvart sjálfum sér. Hann var eitthvað að kvarta yfir því, að mér hefði orðið það á í fyrri ræðu minni, að kalla Sjálfstæðisflokksmennina íhaldsmenn. Þetta má vel vera, að sé rétt hjá hv. þm. En hann má vita það, sá góði maður, að sá pólitíski flokkur, sem hann telur sig nú til, er ekki svo gamall, að heiti hans sé beinlínis gróið inn í meðvitund manna, þar sem líka þeim flokki tilheyra nú fjölmargir þeirra manna, er nú fyrir skömmu skipuðu hinn gamla Íhaldsflokk. Getur hann því ekki ætlazt til, að ég eða aðrir muni jafnan eftir þessum hamskiptum hans og flokksbræðra hans.

Annars skal ég segja þessum hv. þm. það, að hann fer mjög villur vegar, ef hann heldur, að hann geti með þessum margítrekuðu árásum á mig persónulega hrætt mig frá því að láta í ljós skoðanir mínar, hvort heldur er hér í þinginu eða annarstaðar. Ég tel hann harðsnúinn andstæðing þeirra málefna, er ég berst fyrir hér á Alþ. og mun því í engu fyrir honum vægja á þessum vettvangi. Telji þessi hv. þm. það sitt hlutverk, að vera hér á Alþ. með persónulegar dylgjur um mig o. fl., þá hann um það.

Mér er öldungis ókunnugt um þann stuðning, sem þessi hv. þm. telur mig hafa veitt sér til kjörfylgis 1926. Svo að ég skrifti hér, þá fór ég einmitt til Flateyjar árið 1926. Árið 1927 var ég í kjöri í Barðastrandarsýslu fyrir Framsóknarflokkinn. Árið 1928 fór ég svo utan, og kom ekki heim aftur fyrr en 1929. Fékk ég þá þegar harðvítugar árásir í blöðum Sjálfstæðisfl. fyrir baráttu mína vegna Alþýðuflokksins. Hefir þeim árásum síðan aldrei linnt. Hafi hv. þm. eitthvað fleira að segja um mig persónulega, sem hann ætlar að koma með inn í þingið, þá er bezt að hann komi með það strax, svo hann tefji ekki með því önnur mál frekar en orðið er.