24.10.1934
Neðri deild: 18. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 922 í B-deild Alþingistíðinda. (1114)

26. mál, vinnumiðlun

Héðinn Valdimarsson [óyfirl.]:

Ég hefi ekki tíma aflögu til annars en svara lítilsháttar þm. G.-K. Hann vildi telja til varnar sér og sínum flokki, ef þeir óhlýðnuðust l., sem kynnu að verða sett, að ég hefði sagt, að verklýðsfél. mundu ekki beygja sig undir l., sem hindruðu starfsemi þeirra. Ég tel þetta ekki vera neinn samanburð, því það er allt annað, ef kippa á grundvellinum undan starfsemi verklýðsfél., sem eru viðurkennd um allan menntaðan heim, nema í einræðislöndunum Ítalíu og Þýzkalandi. Ef sjálfstæðisflokkurinn unir því svo illa að vera minnihlutaflokkur, að þá má ekkert gera, sem honum ekki fellur, án þess hann hóti því að grípa til vopna, þá er gott að vita það.

Þá vildi þm. G.-K. lýsa því yfir, að það væri algerlega rangt, sem ég hefði sagt um vinnumiðlun hf. Kveldúlfs, er ég tók dæmi af. Það er náttúrlega erfitt að leiða fram beinar sannanir fyrir því, að menn séu reknir úr skiprúmi af pólitískum ástæðum og ráðnir á skiprúm af pólitískum ástæðum, en það er vitað, að svona er það, allur þorri sjómanna veit það. Ég vildi þá aðeins gefa skýrslu samkv. skipshafnaskrá fyrir síðustu saltvertíð.

Á Agli Skallagrímssyni voru 8 utanbæjarmenn, Skallagrími 13, Þórólfi 12, Gylli 14, Gulltoppi 8, Snorra 6 og Arinbirni hersi 11.

Þegar farið er að athuga þessa menn, 72 alls, hvaðan þeir eru, kemur í ljós, að flestir eru þeir úr kjördæmum þeirra bræðra, þm. Snæf. og þm. G.-K. Og ef menn þekkja þetta betur, úr hvaða hreppum þeir eru komnir t. d., þá mun mega sjá, að pólitíkin ræður miklu um mannvalið. - Þá er hitt atriðið, sem þm. vildi neita, að menn væru látnir fara úr þjónustu Kveldúlfs vegna pólitískra skoðana, og talaði um það eins og það væri helber fjarstæða. Ég veit um mörg dæmi, bæði sjómenn og verkamenn, en ætla aðeins að nefna 4 dæmi í þetta sinn. Þorgils Bjarnason var settur í land fyrir þær sakir einar, að grunur lék á, að hann hefði kært yfir síldarmálunum á Hesteyri. Ólafur Kristófersson var látinn hætta, af því hann fór fram á það, að sér væri greitt kaup samkv. sjómannalögum, og fékk það seinna úrskurðað með dómi. Gunnar Kristófersson var settur í land af Agli Skallagrímssyni, og hann hafði ekki annað gert eða til saka unnið en að láta í ljós, að hann væri Alþýðuflokksmaður. Hann var duglegur og óaðfinnanlegur í sínu starfi, eins og þessir menn allir.

Þá skal ég koma með nýtt dæmi. Það er ekki sjómaður eða verkamaður, heldur bókhaldarinn og gjaldkerinn á Hesteyri, Sveinn Þorkelsson. Hann var beðinn að styðja að kosningu núv. þm. N.-Ísf., en hann færðist undan því og bar við, að hann vildi ekki skipta sér af pólitík.

Síðan gekk maður undir manns hönd að tala við hann, þ. á. m. Sigurjón Jónsson, bankastjóri á Ísafirði, en hann lét sig ekki. Var þá hringt til hans og hann látinn vita, að h/f Kveldúlfur þyrfti ekki lengur hans með í stöðunni.

Ég læt þetta nægja til að sýna, hvernig vinnumiðlunin er, þar sem þessir menn ráða.