09.10.1934
Efri deild: 6. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1431 í B-deild Alþingistíðinda. (1124)

7. mál, gengisviðauki

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Þetta frv. fer fram á framlengingu á gengisviðauka á nokkrum tegundum vara. Þó er sú breyt. frá því, sem nú er, að gengisviðauki á kaffi og sykri verður ekki framlengdur, ef frv. verður gert að lögum. Stj. áleit nauðsynlegt að færa tolla og skatta í eins réttlátt form og unnt er — réttlátara farm en verið hefir. Þess vegna leggur stj. til, að leiðrétting sé gerð viðvíkjandi kaffi og sykri og að gengisviðaukinn, sem lagður var á 1933, verði felldur niður, en annar gengisviðauki framlengdur. — Að þessari umr. lokinni, óska ég þess, að frv. verði vísað til fjhn.