10.12.1934
Neðri deild: 55. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2833 í B-deild Alþingistíðinda. (117)

Afgreiðsla þingmála

Gunnar Thoroddsen:

Ég vil geta þess, að frv. um opinberan ákæranda er komið fram á þingi fyrr en ég ætla flest þau mál, sem fram hafa verið borin af einstökum þm., og mér skilst, að sú regla eigi að gilda, þegar mál eru tekin á dagskrá, að láta hin eldri ganga fyrir. En þar sem hæstv. forseti hefir tekið þessu vel, skal ég ekki hafa um það fleiri orð.